Nýja leiðin

Þetta virðist vera nýjasta vinnustaðamódelið. Starftsmenn vinna bara þá vinnu sem þá langar að vinna. Hvað er næst? Fréttaþulir sem neita að flytja fréttir sem þeim líkar ekki?


mbl.is Gísli Marteinn lýsir ekki Eurovision í ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að skrifa eða að skrifa ekki

Ég sé nú ekki betur en að Arnar Eggert Thoroddsen sé einmitt að skrifa um keppnina.


mbl.is Fær kvíðahnúta í magann yfir Eurovision
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gloppa

Að mínu mati er það fáránlegt að manneskja sem hefur boðið sig fram til forseta geti á sama tíma verið forsætisráðherra. Þetta er borðleggjandi dæmi um hagsmunaárekstra. Að þetta sé mögulegt sýnir að það er stór gloppa í stjórnkerfinu. Lögum þetta sem fyrst.


mbl.is Skrökva vonandi ekki að forsetanum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ofbeldi?

Í greininni stendur:

Í dag kom lög­regla hins veg­ar í veg fyr­ir að mót­mæl­end­ur kæm­ust að stofn­braut­inni og vöruðu við því að „of­beldi yrði beitt“ ef þeir færu á göt­una. 

Í þeim greinum sem ég hef lesið um þetta mál er orðið ofbeldi" ekki notað enda væri það mjög sérkennilegt. Hér er tilvitnun í erlenda grein:

Despite the group’s attempt to access the highway, police, some mounted on horseback, prevented their entry, warning that force might be used if the protesters attempted to breach the roadway. Heimild: https://www.firstpost.com/world/greta-thunberg-detained-by-dutch-police-13757012.html

Force, Í þessu samhengi, á auðvitað að þýða sem vald en ekki ofbeldiGreta Thunbeg segir: „Við þurf­um að gera allt til þess að koma í veg fyr­ir neyðarástand og bjarga manns­líf­um.“ En málið er að það er hún og aðrir aðgerðarsinnar sem trekk í trekk skapa neyðarástand með andfélagslegri hegðun sinni og lögbrotum.


mbl.is Greta Thunberg handtekin tvisvar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrsti apríl

Greininni líkur svona:

Þess má geta að mbl.is hlífði les­end­um fyr­ir aprílgabbi þetta árið. 

Er þetta ekki besta aðrílgabbið? Að vera með ekkert aprílgabb. 


mbl.is Bókaútgáfa Diego, Elko Air og skemmtigarður við jökullón
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er málið?

Í greininni stendur:

„Ég hef enga rosa­lega trú á því að ís­lenskri tungu verði viðhaldið með lög­um. Ef þetta snýst um það hvort þjóðin vill halda í tungu­málið og ef hún vill það þá á ekki að þurfa lög til þess. Mér finnst al­veg mega skoða það hvort það eigi eitt­hvað að herða á lög­um hvað þetta varðar, sem sagt hvað varðar notk­un fyr­ir­tækja og einkaaðila á ís­lensku á op­in­ber­um vett­vangi,“ seg­ir Ei­rík­ur.

Ég skil ekki alveg hvað Eiríkur er að fara þarna. Hann segist hafa „enga rosa­lega trú á því að ís­lenskri tungu verði viðhaldið með lög­um“ en segir líka að það megi „skoða það hvort það eigi eitt­hvað að herða á lög­um hvað þetta varðar“. Ef málinu verður ekki viðhaldið með lögum hvers vegna þá að setja eða herða lög um málnotkun? 


mbl.is Íslendingar eftirbátar Eista
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Viðskiptafræði fyrir byrjendur

Ráðleggingar Tinnu eru góðar en það kemur á óvart að eigandi fyrirtækisins sé að átta sig á því fyrst núna að það sé enginn dans á rósum að reka lítið fyrirtæki. Kannski væri bara best fyrir hann að hætta rekstri og fara að vinna hjá einhverjum öðrum. 


mbl.is Er að gefast upp vegna heimtufrekju starfsfólksins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kántrí

Mér finnst kántrí í góðu lagi en ég nennti nú ekki að hlusta á nema helminginn að þessu lagi með Miley Cyrus og Beyoncé. Mæli frekar með "Jolene" með Dolly Parton og "Cold, Cold Heart" með Hank Williams.


mbl.is Miley þakkar Beyoncé fyrir samstarfið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þegar tónlistarfólk hættir

Sagan hefur kennt okkur að tónlistarfólk sem segist ætla að hætta hættir yfirleitt ekki. The Who hafa t.d. farið í ansi margar lokatónleikaferðir.


mbl.is Lizzo: „Ég er hætt“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Farsaframbjóðandinn

Án Kennedy-nafnsins væri þessi maður bara venjulegur samsæriskenninga-trúður. Fylgjendur hans virðast aðalega vera öfga-hægri og öfga-vinstrimenn, sem kemur ekkert sérstaklega á óvart. Besservisserar allra landa sameinist! tongue-out


mbl.is Varaforsetaefni Kennedy-erfingja kynnt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband