Færsluflokkur: Bloggar
Lítil hugmynd
11.3.2024 | 21:19
Svo er líka hægt að borða svolítið minna.
Ný pilla slær öðrum megrunarlyfjum við | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hm . . .
11.3.2024 | 04:00
Í greininni stendur:
Það þarf ótrúlegt hugrekki fyrir mann í stöðu Bashar Murad að vera jafn frjáls í sköpun sinni og hann er. Vonbrigði að hann vann ekki en stuðningurinn sem hann fékk hér var ótrúlegur. Við megum vera stolt af því. En hann er kannski að etja við öfl sem eru aðeins öflugri en kosningakerfi Söngvakeppninnar ræður við, segir Ragnar.
Ef ég skil þetta rétt þá er Ragnar Kjartansson að ýja að einhverju risasamsæri hér.
Ragnar segir framlag Bashar Murad frábært listaverk | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Land, menning og tunga
10.3.2024 | 23:19
Það er hárrétt hjá Barry James--sem í gamla daga hefði verið neyddur til að skipta um nafn og kalla sig kannski Bárð Jakob Varðarson--að tungumálið er lykillinn að menningu landsins. En staðreyndin er sú að núna er hægt að búa á Íslandi og tala bara ensku. Það virka upp að vissu marki en afleyðingin er að viðkomandi verður alltaf utangarðs menningarlega og samfélagslega en sumum finnst það ekki nægilega mikið vandamál til að það sé þess virði að læra íslensku.
Að læra tungumálið hleypti mér inn í samfélagið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Veldi fáránleikans
9.3.2024 | 22:10
Gerður er mikill Eurovision aðdáandi en styrinn sem staðið hefur um keppnina varð til þess að hún neitaði sér um að fylgjast með henni. Þetta sýnir okkur að skoðanakúgun virkar, sem er auðvitað sorglegt. Að RÚV taki þátt í Eurovision en taki mögulega samt ekki þátt í Eurovision er einn eitt dæmið um veldi fáránleikans. Samuel Beckett hefði ekki getað gert betur.
Ekki víst með þátttöku Heru Bjarkar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 10.3.2024 kl. 01:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Viðkvæmar bullur
8.3.2024 | 06:35
Trump dreifir lygum og óhróðri um alla sem standa í vegi hans en er mjög viðkvæmur fyrir því sem aðrir segja um hann, sem er dæmigert fyrir fólk sem kalla mætti viðkæmar bullur. Á ensku kallast svona fólk victim bullies. En það er spennandi að fylgjast með þessu öllu saman. Ég verð að segja það!
Trump gert að greiða tugi milljóna í málskostnað | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Eurovision: Í sextánda sæti
7.3.2024 | 05:19
Stefnum við ekki beint í sextánda sæti? Er það ekki okkar sæti, besta sætið?
Ísland hríðfellur í veðbönkum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þróun
6.3.2024 | 07:55
Þessa þróun má rekja til Búsahaldabyltingarinnar. Þetta ástand er komið til að vera. Það er ekki fyrr en verulega illa fer, sem er bara spurning um tíma, að eitthvað gæti hugsanlega breyst.
Stigmögnun í mótmælum og ráðamönnum hótað | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Macron
6.3.2024 | 04:47
Heldur Macron kannski að hann sé Napóleon?
Pistorius andmælir Macron | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bjórbannið
5.3.2024 | 03:59
Ég reyni stundum að útskýra bjórbannið fyrir útlendingum. Það er alveg vonlaust. Þeir skilja ekki hvers vegna það mátti kaupa sterk vín og léttvín en ekki bjór. Ég reyni að skýra út fyrir þeim að ein af röksemdunum hafi verið sú að það að leyfa bjór myndi auka líkurnar á dagdrykkju og að ef bjórinn yrðu leyfður yrðum við eins og Danir, alltaf fullir. Útlendingar hrista bara hausinn og verða vandræðalegir. Maður þarf að vera islenskur til að skilja þetta
Man ekkert hvar hann var 1. mars 1989 | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Krafan um endalausan stuðning
29.2.2024 | 07:21
Í greininni stendur: Jóna Flosadóttir "segir stjórnvöld ekki hafa komið Fjölskylduhjálpinni til aðstoðar við erfiðar aðstæður. Hún sé reiðubúin að halda áfram ef stjórnvöld eru reiðubúin að leggja sitt af mörkum til stuðnings við bágstadda hér á landi". Hún talar eins og það sé ekki rándýrt velferðarkerfi í landinu. Hvers vegna í ósköðunum á ríkið, sem er fjármagað af skattborgurum, að styðja hinn ört vaxandi hóp af félögum og samtökum í landinu? Stofnið endilega góðgerðasamtök, trúfélög, íþróttafélög, lífskoðunarfélög o.s.frv. en þau eiga að vera á ábyrgð þeirra sem reka þau og þeirra sem vilja styðja þau með frjálsum framlögum, ekki skattborgara. Skattborgarar allra landa sameinist og segið nei við þessu rugli!
Fjölskylduhjálp Íslands að leggja upp laupana | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)