Lausn
3.4.2017 | 07:52
Trump gat ekki einu sinni komið heilsutryggingafrumvarpi sínu í gegnum bandaríska þingið, þótt flokkur hans sé með meirihluta í báðum þingdeildum, þannig að það er kannski betra að taka loforði hans um að leysa kjarnorkuvána sem stafar af Norður-Kóreu með örlitlum fyrirvara.
Við verðum að vona að Kínverjar nái að koma fyrir hann vitinu. Annars gæti heimurinn staðið frammi fyrir einvígi milli appelsínugula mannsins með litlu hendurnar og litla Kims. Það gæti endað með endanlegri lausn.
Bandaríkin leysa vandann | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Spurning
3.4.2017 | 00:29
í greininni stendur: Verður þetta að teljast hressileg tilbreyting í myndbandsgerð og rappi sem hefur lengi verið gagnrýnt fyrir kvenfyrirlitningu."
Horfði sá, eða sú, sem skrifaði greinina á myndbandið? Það er stútfullt af kvenfyrirlitningu. Orðið bitch" er endurtekið í sífellu. Engin tilbreyting þar.
Appelsínuhúð og alvöru líkamar í rappinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)