Því miður

Gott að heyra að sumir Bandaríkjamenn mótmæla, en því miður held ég að flestir Bandaríkjamenn hafi ekki áhyggjur af þessu. Mörgum finnst þetta meira að segja alveg sjálfsagt, bara „hluti af alþjóðasamskiptum," eins og einn bandarískur fréttaskýrandi tók til orða. Þeir hafa meiri áhyggjur af því að Edward Snowden hafi skaðað ímynd Bandaríkjanna með því að upplýsa heiminn um stórfeldar njósnir ríkisins.
mbl.is Hafa hlerað síma Merkel í 11 ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Wilhelm Emilsson

Það eru góðar fréttir að mótmælin við Hvíta húsið voru þverpólitísk: frjálslyndir persónuvernarsinnar og íhaldsamt Teboðshreyfingarfólk mótmælti því sem það kallaði ólöglegar njósnir ríkisins um Bandaríkjamenn. Á mótmælaspjöldum stóð meðal annars: „Stöðvið allsherjar njósnir," „Takk, Edward Snowden" og „Takiði Stóra bróður úr sambandi."

Heimild: Reuters

Wilhelm Emilsson, 27.10.2013 kl. 05:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband