Jón Sigurðsson horfir á

Íslensk stjórnmálHér er nokkuð merkileg mynd. Forsætisráðherra stangar úr tönnunum á meðan Bjarni og Katrín eiga í erfiðum samskiptum. 

Hvað skildi Jón forseti vera að hugsa?


mbl.is Baðst afsökunar á ummælum sínum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haraldur Rafn Ingvason

"...ég hefði betur sleppt þessu..."

Haraldur Rafn Ingvason, 27.2.2014 kl. 00:50

2 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Hann er að spá í næsta drykk í áfengi en hann hefði verið sendur 78 sinnum um ævina á Vog ef sú stofnun hefði verið til um hans daga.

Maður sem lifði úti í Kaupmannahöfn á fjölskylduauðæfum séra Hannesar prófasts Stephensen Alþingismanns.

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 27.2.2014 kl. 00:53

3 Smámynd: Wilhelm Emilsson

Takk fyrir innlitið, Haraldur Rafn og Predikari.

Predikari, og ég sem hélt að Jón Sigurðsson hefði verið Óskabarn Íslands, sverð þess og skjöldur.

Ég fann umræðu í templarblaðinu Templar um Jón Sigurðsson. Þetta er frá 1908. Einn lesandi er að verja þá skoðun sína að Jón forseti hafi verið drykkjumaður. Ritstjóri Templars skrifar að hann sé „ekki samdóma grein þessari og hefir áður lýst skoðun sinni á máli því, sem hér er um að ræða. Framanprentuð grein stendur eingöngu fyrir reikning greinarhöfundsins sjálfs."

Gaman að lesa umræður frá upphafi síðusta aldar um menn og málefni. Í Templar stendur líka að Danir séu „ölbelgir miklir". :) Ég er ekki nægilega vel að mér til að vita hvað nútíma sagnfræðingar hafa að segja um áfengisneyslu Jóns Sigurðssonar.

Heimild: http://timarit.is/view_page_init.jsp?pageId=4799477

Wilhelm Emilsson, 28.2.2014 kl. 20:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband