Malta

Bíddu, er Malta sjálfstætt ríki?

Malta

 


mbl.is Auðveldur 5:0 sigur á Möltu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rafn Guðmundsson

ekki hjá sumum í framsókn/bændaflokknum

Rafn Guðmundsson, 19.6.2014 kl. 23:51

2 identicon

Sæll Wilhelm.

Malta er sennilega ekki til; ímyndun, hugarburður
og hreinn uppspuni!

Má í þessu sambandi minnast Ágústínusar, hins heilaga
kirkjuföður, sem fullyrti að Ástralía væri ekki til.

Aðspurður hvernig á því stæði að menn fengju bréf og
jafnvel peningasendingar frá Ástralíu átti hann það svar eitt
að allt væri það vélabrögð andskotans.

En enginn skyldi efast um fljóð það sem runnið er þar upp
þar sem bleikir akrar og slegin tún mættust í Fljótshlíðinni
og æ og ævinlega hefur verið uppspretta fegurðar og unaðar;
bjargandi allra bjargráða þá óbjarganda skyldi í hel komið.

Húsari. (IP-tala skráð) 20.6.2014 kl. 09:53

3 identicon

Sæll Wilhelm!

Eins og fyrr sagði þá er eyja þessi ekki til eða hún verið
færð til eða öllu líklegra sokkin í sæ eða hreinlega gufað upp
en slíkt henti þegar á dögum Ptolemiusar, landfræðings
þegar það land sem hann þóttist sjá, Ultima Thule,
fannst aldrei en þeim mun fleiri er tóku þátt í fagnaði
Neptúnusar í undirdjúpunum við að leita þennan fjanda uppi.

Melíta sem sagt er frá í Postulasögunni 28. kafla 1. versi
reyndist hins vegar Páli postula og félögum hans til
mikils happs þá er þeir urðu skipreika og náðu að synda í
náðarfaðm Melítu ýmist á plönkum, rauðvínskútum eða öðru
því lauslegu braki sem tiltækt var.

Að vísu hafði þeim verið illt í hug gagnvart bandingjalýð
nokkrum en þyrmt með þessum hætti frá sjálfum sér og öðrum!

Auðvitað var það hundraðshöfðingi, Rómverji, sem hafði vit fyrir
þeim, - rétt eins og Ítalía fyrir Uruguay kl. 16 í dag! 

Húsari. (IP-tala skráð) 24.6.2014 kl. 13:58

4 Smámynd: Wilhelm Emilsson

Takk fyrir innlitið, Rafn og Húsari.

Wilhelm Emilsson, 25.6.2014 kl. 02:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband