Leifur og Obama

Í ræðu sinni sagði Obama:

Since our Nation's founding, we have been driven by strength in the face of uncertainty and by a bold spirit of adventure. These defining forces were reflected in the early discovery of our continent when Leif Erikson -- a son of Iceland and grandson of Norway -- and his team became the first Europeans known to land on North American shores. On Leif Erikson Day, we honor him as an important piece of our shared past with the Norwegian people, and we celebrate the perilous yet rewarding voyage he and his crew undertook one millennium ago.

Obama kallar Leif semsagt "son Íslands" og "sonarson Noregs" en svo talar hann bara um tengls Bandaríkjamanna við Norðmenn en gleymir Íslandi. Þessa ræðu hefði þurft að endurskrifa. Svo gleymir höfundur ræðunnar því að frumbyggjar voru löngu búnir að uppgötva Ameríku.

 

 


mbl.is Var Leifur heppni norskur?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já, en... var Leifur ekki sonur Eiríks og Þjóðhildar?undecided

X-files (IP-tala skráð) 18.10.2015 kl. 23:28

2 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Ekki má nú mikið ef það má ekki segja þetta.

Moggi eða vissir þjóðrembingsblaðamenn virðast endilega vilja gera eitthvað mál úr þessu og farnir að tala um sjálfstætt þjóðveldi.

En engin spyr hvernig Leifur hefði litið á málið.

Sennilegast er að ef Leifur kæmi inní þessa umræðu núna, - að þá hefði hann ekki hugmynd um hvað væri verið að tala.

Hann hefði ekki skilið þessa skörpu þjóðríkjaskiptingu nútímans.  Eðlilega,  enda nýtilkomin tíska sögulega séð.

Í stóru myndinni er Leifur grein af útþenslu noregssvæðis á þessum tíma þar sem útþensla norrænna manna fór mikið í gegnum vegna sterkrar stöðu skipatækni á svæðinu.

Leifur var líka með sjálfum Ólafi Tryggva í Noregi og fór í ferðir með hans ráðum.

Það er til lítils að ætla að slá á fast hvers lenskur Leifur var samkvæmt nútímaskilningi og skilgreiningum en ef menn vilja gera það, - þá geta bæði löndin gert það.

Það vekur svo upp spurninguna hvað Grænland segir.  En þeir vilja kannski ekki Leif þeir grænlendingar.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 19.10.2015 kl. 00:58

3 identicon

Wilhelm, af hverju segirðu: "Svo gleymir höfundur ræðunnar því að frumbyggjar voru löngu búnir að uppgötva Ameríku."? Obama gleymir því ekki neitt, því að hann sagði: "...Leif Erikson ... and his team became the first Europeans known to land on North American shores." Þú vissir vel, að frumbyggjar Ameríku voru ekki Evrópubúar, er það ekki?

Pétur D. (IP-tala skráð) 19.10.2015 kl. 08:05

4 Smámynd: Wilhelm Emilsson

Hæ, Pétur. Takk fyrir að líta við. Fyrst stendur í ræðunni "These defining forces were reflected in the early discovery of our continent when Leif Ericson . . . ". Ég er að vitna í þetta.

Wilhelm Emilsson, 19.10.2015 kl. 20:31

5 Smámynd: Wilhelm Emilsson

Og takk fyrir athugasemdirnar X-files og Ómar Bjarki.

Wilhelm Emilsson, 19.10.2015 kl. 20:31

6 identicon

Okay, þá það. smile

Pétur D. (IP-tala skráð) 21.10.2015 kl. 08:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband