Meirihlutinn trúir "brjálæðislegum fullyrðingum"

Í greininni stendur:

Þar sem vitað er að ávallt er til veru­leg­ur minni­hluti sem er sam­mála hvaða brjálæðis­legu full­yrðingu sem sett er fram – El­vis er enn á lífi, geislasverð eru til – hvað ætt­um við þá að leggja mikið upp úr könn­un­um sem sagt er að sýni vísi að bresk­um ji­had­isma?

Mikill meirihluti mannkyns trúir "brjálæðislegum fullyrðingum" eins og til dæmis því að Guð hafi talað við Múhammeð, að hrein mey geti eignast barn og endurholdgun eigi sér stað. Hæfileiki meirihluta mannkyns til að trúa er ansi mikill.

Teiknimynd

 


mbl.is Er hann Elvis kannski enn á lífi?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Partur af mannsheilanum er fyrir trú. Svo er bara áróðursmeistaranna að ákveða hvað verður sett í þennan trúarpart af heilanum.

Þess vegna liggur Páfanum svona mikið á að heilaþvo varnarlaust fátækt Afríkufólk með blekkingum. Svo þjálfar Páfinn þessa heilaþvegnu þegna "Guðs", til að verða enn ein samtökin "mótmælandi", í "nafni" Guðs.

Skelfilegt!

Alveg skelfilegt!

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 29.11.2015 kl. 03:34

2 Smámynd: Jósef Smári Ásmundsson

Nei, nú trúi ég ekki. Er þetta satt?innocent

Jósef Smári Ásmundsson, 29.11.2015 kl. 09:45

3 Smámynd: Wilhelm Emilsson

Takk fyrir athugasemdina, Anna. Ég held að það sé mikið til í því að það sé innbyggt í mannshugann að trúa á eitthvað--og eins og þú bendir á þá er fullt af fólki sem nýtir sér það.

Heh, heh. Góður, Jósef Smári. Efasemdamenn--alltaf til vandræða wink 

Wilhelm Emilsson, 30.11.2015 kl. 01:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband