Framhaldssagan

 

2

 

Sveinki lagði gamla brúna Wagoneer jeppanum sínum með brotnu gerviviðarklæðningunni í stæði við Lögreglustöðina við Hlemm. Fimm mínútum síðar sat hann á fundi sem yfirvarðstjórinn Björn Björnsson stjórnaði. Herbergið var troðfullt og loftið var þungt.

 

“Gott fólk,” rumdi Björn. “Það er kominn tími til að takast á við þennan glæpaklíkufaraldur sem fer eins og eldur í sinu um höfuðborgarsvæðið. Það er skömm að þessu. Eins og mig grunaði er Vestur-Íslendingaklíkunni verulega farið að vaxa fiskur um hrygg. Þetta lið kemur hingað heim fáránlega ofmenntað, með amerískan hreim, skuldahala, hóp af börnum, fær svo ekki vinnu auðvitað—ég meina, hver vill ráða þetta pakk?—og fer að díla dóp til að geta borgað námslánin og VISA reikningana.”

 

“Nú ekki eru Austur-Evrópugengin skömminni skárri,” hélt hann áfram, “hangandi í Kringlunni daginn út og inn, stelandi öllu steini léttara. Mér er tjáð að í Kringlunni fari ein búð á hausinn á viku vegna “vörurýrnunar.” Huh, öllu má nú nafn gefa.”

 

“Djöfulsins innflytjendur,” sagði hrokkinhærð rauðbirkin götulögga.

 

Björn sló hramminum í borðið. “Ég líð engan rasisma hér, Ásgeir! Er það skilið?”

 

“Já, yfirvarðstjóri.”

 

“Svo getur þú nú trútt um talað, Eyjapeyinn þinn,” bætti Björn við.

 

“Heyrðu, þetta er nú ekki sanngjarnt,” svaraði Ásgeir.

 

“Sanngjarnt? Auðvitað er þetta ekki sanngjarnt. Lífið er ekki sanngjarnt. Það veist þú jafnvel og ég, kallinn minn. Í veröld þar sem Árni Johnsen fær að gefa út plötur getur lífið ekki verið sanngjarnt. En við bítum á jaxlinn og gerum okkar besta, er það ekki Ásgeir?”

 

“Já, yfirvarðstjóri.”

 

“Þetta líkar mér,” sagði Björn og klappaði manninum á kinnina svo small í.”

 

Björn var þögull nokkra stund. Svo hóf hann aftur upp raust sína. “En verst er auðvitað Prestaklíkan.”

 

“Heyr, heyr! Helvítis prestarnir,” sögðu allir fundarmenn, nema einn. Sveinki sagði ekki orð. Hann fann hópinn stara á sig, en hann var þögull sem gröfin, horfði beint framfyrir sig og hreyfði hvorki legg né lið.

 Framhald

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Björg Árnadóttir

hehehehe.... greinilega engir rasistar í þessum hópi. Ekki heldur neinir fordómar í gangi. Allt hið besta fyrirmyndarfólk. Eins og við öll. Engill

Björg Árnadóttir, 24.8.2007 kl. 11:46

2 Smámynd: Kristín M. Jóhannsdóttir

Hahahahahahhahahahahahahahhahahahahha

Kristín M. Jóhannsdóttir, 24.8.2007 kl. 15:19

3 identicon

Hlakka til að lesa meira um ástir og örlög þessa hóps. Spurning hvort fyrirbærið mitt, Rúnar rottuungi, gæti átt heima í þessari sögu? Hann er alltaf að gera einhverja skandala og brjóta af sér en iðrast svo voðalega alltaf í lokin á sögunum mínum, þetta eru sko smásögur sem ég nota til að skemmta óþekkum krökkum með góðum árangri. Ég gæti selt þér höfundaréttinn á góðum díl, t.d. að ég fengi buffetskápinn sem þú varst búinn að eigna þér hérna í den? Eða ætlaðir þú að fá skattholið og Ásta buffetinn? Man ekki alveg. Allavega ég er mjög sanngjörn í samningum og Rúnar er falur fyrir rétta borgun...

Anný Lára (IP-tala skráð) 24.8.2007 kl. 19:31

4 Smámynd: Wilhelm Emilsson

Takk, gott fólk.

Anný Lára, ég fíla Rúnar rottunga í tætlur! Lögfræðingar mínir mun hafa samband bráðlega.

Wilhelm Emilsson, 27.8.2007 kl. 02:06

5 Smámynd: Einar Bragi Bragason.

Þú ert snillingur........en er Anný lára orðin stór ha erum við að eldast

Einar Bragi Bragason., 27.8.2007 kl. 23:46

6 Smámynd: Wilhelm Emilsson

Kæri Einar Bragi.

Kærar þakkir fyrir hólið  Já, Anný Lára er vaxin úr grasi, en við eldumst ekki neitt.

Wilhelm Emilsson, 28.8.2007 kl. 20:02

7 identicon

Langaði bara að benda þér á þennan link þar sem talað er um dönsku myndina sem ég sagði þér eitt sinn að væri góð: http://www.imdb.com/title/tt0418455/

Steinunn (IP-tala skráð) 28.8.2007 kl. 21:43

8 Smámynd: Wilhelm Emilsson

Hæ, Steinunn.

Kærar þakkir fyrir upplýsingarnar. Ég tékka á þessu.

Wilhelm Emilsson, 29.8.2007 kl. 04:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband