Upptekinn

Jæja, núna er maður kominn á fullt að kenna. Ég er að kenna nýjan margmenningarkúrs og hef í mörg horn að líta, en þetta er spennandi vinna, því ég hannaði kúrsinn sjálfur og er að kenna efni sem mig hefur lengi langað til að fjalla um. Á ensku kallast kúrsinn Introduction to Intercultural/International Studies. Þemað er Culture and Desire. Menning og ástríða. Svaka spennó!

En ég er ekki búinn að gleyma framhaldssögunni. Ég ætla að reyna að birta nýtt efni um helgina.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

uhhhh,,,, ég bíð spennt gamli vin . Var farin að halda að þú hefðir gleymt okkur.

Margrét Össurardóttir (IP-tala skráð) 14.9.2007 kl. 10:27

2 Smámynd: Wilhelm Emilsson

Hæ, Magga og Björgvin.

Já, Björgvin. Þetta er sjálfsævisögulegt að hluta til! 

Wilhelm Emilsson, 16.9.2007 kl. 22:12

3 Smámynd: Kristín M. Jóhannsdóttir

Alltaf frábært þegar maður fær að hanna kúrsa að eigin vali. Síðasta árið mitt í Manitoba kenndi ég einn áfanga í íslenskum þjóðsögum og einn í íslenskum barnabókmenntum. Það var alveg magnað.

Kristín M. Jóhannsdóttir, 16.9.2007 kl. 22:59

4 Smámynd: Wilhelm Emilsson

Hæ, Kristín.

Sammála! Var Djákninn á Myrká á listanum hjá þér yfir þjóðsögur? Mögnuð saga. Séríslenskur hryllingur, finnst mér.

Hvaða barnabækur kenndirðu? Gegnum bernskumúrinn kannski eftir Eðvarð Ingólfsson?  Hvað varð eiginlega um hann?

Wilhelm Emilsson, 18.9.2007 kl. 02:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband