Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2014

Hjálparstarf

Kannski verður Nick Dearden þessi fenginn til að laga textann. Hann virðist vera með þetta allt á hreinu. Eða þannig. 


mbl.is Verður texta Band Aid breytt?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Loforð--gömul og ný

Sigmundur Davíð er mikið gefinn fyrir loforð. Hér er gamalt loforð frá honum fyrir síðustu kosingar um afnám verðtrygginar.

Afnámið

Afnámið verður að framkvæma þannig að fólk með verðtryggð lán geti skipt yfir í óverðtryggð, lántakendum bjóðist stöðugir vextir, áhætta skiptist milli lánveitenda og lántaka þannig að áættunni sé skipt eðlilega. Það er eðlilegt að þeir sem taka lán til að kaupa sér íbúð njóti meiri verndar en fjárfestarnir sem lána, fram til þessa hefur því verið öfugt farið. Loks þarf lögmálið um framboð og eftirspurn að virka neytendum í hag, þ.e. ekki verði hægt að krefjast hærri vaxta en fólk getur staðið undir með því að fela raunverulegan kostnað lánanna.

Heimild: http://sigmundurdavid.is/afnam-og-leidretting-thetta-er-einfalt/

Hann hlýtur að standa við þetta.

Hvernig skyldi annars ganga með íslenska kúrinn, sem hann byrjaði í águst 2011?

Jæja, þá er komið að því. Á morgun byrja ég fyrir alvöru í megrunarkúr sem ég hlýt að kalla íslenska kúrinn því hann felst í því að borða bara íslenskan mat. Íslenski kúrinn byggist á því að:

a) Ég hitti meltingarlækni sem sagði mér að íslenskur matur væri sá hollasti í heimi.

b) Aðeins helmingur þeirrar fæðu sem neytt er á Íslandi er framleidd hér. Þ.a. ef maður borðar bara það íslenska borðar maður helmingi minna. Með því að auka svo neyslu á íslenska matnum um 50% endar maður í 75% af fyrri neyslu.

Sjáum hvað setur. Til að veita mér aðald og í þágu vísinda ætla ég að birta þyngdarmælingu á mánudögum næsta mánuðinn.

Byrjunarstaða: 108 kg.

Heimild: http://sigmundurdavid.is/islenski-kurinn/

Þrátt fyrir loforðið fann ég ekkert um þyngdarmælingar á vefsíðu hans næsta mánuðinn--ef mér hefur yfirsést látið mig endilega vita--en ég fann grein sem heitir "Er eitthvað að marka stefnuræðu forsætisráðherra?" Hann var kannski bara að grínast.

 


mbl.is Fyrsta aðgerðin af mörgum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mynd

Gaman að sjá þessa fallegu og dulúðugu mynd aftur.


mbl.is Gallsúr snjór við gosstöðvarnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Afsakanir

Í yfirlýsingunni segir: „Eng­inn lækn­ir vill vera í verk­falli." Jú, læknar vilja vera í verkfalli. Þeir kjósa það. Hvort sú ákvörðun er góð eða slæm er annað mál. En að neita að taka ábyrgð á gerðum sínum með því að tala svona er bara léleg afsökun.


mbl.is „Viljum öll geta starfað á Íslandi“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hjálpum þeim

Ég legg til að Framsóknarflokkurinn verði gerður að sameign þjóðarinnar og friðaður. Annars á hann það á hættu að tortíma sjálfum sér. Flokkurinn hefur of mikið menningarsögulegt gildi til að við getum horft upp á að það gerist.

Framsókn


mbl.is Alþingi taki yfir Vatnsmýrina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kvíbekk

Það er fátt jafn böring og kvíbekkískir þjóðernissinnar.


mbl.is Gagnrýndur fyrir að tala ensku á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvert stefnir?

Endar þetta nýja stefnuæði Íslendinga ekki með því að einhver stefnir sjálfum sér óvart?

Hæstiréttur 


mbl.is Ólafur höfðar vitnamál
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Goldfinger og feðraveldið

GOLDFINGER: "Choose your next witticism carefully, Mr. Bond. It may be your last."


mbl.is Reynir að bjarga Goldfinger
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Djörk

Jerk


Viska Steins

Ben Stein segir ansi margt. Hann sagði eitt sinn: „Ást á Guði og samúð og samhygð leiða þig á dýrlegan stað og vísindi leiða til þessa að þú drepur fólk." 

Heimild: http://boingboing.net/2008/05/01/ben-stein-science-le.html


mbl.is Obama sagður kynþáttahatari
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband