Farsaframbjóðandinn
27.3.2024 | 05:00
Án Kennedy-nafnsins væri þessi maður bara venjulegur samsæriskenninga-trúður. Fylgjendur hans virðast aðalega vera öfga-hægri og öfga-vinstrimenn, sem kemur ekkert sérstaklega á óvart. Besservisserar allra landa sameinist!
Varaforsetaefni Kennedy-erfingja kynnt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Trump sigurvegari og tapari
26.3.2024 | 06:35
Trump: alltaf að græða. Samt finnst honum lífið svo ósanngjarnt. Ekkert nema endalausar nornaveiðar. En samt er hann bestur í öllu að eigin sögn og allir elska hann og vita að hann er frábær. Trump er maður þversagna en hann er ekki einn um það.
Trygging Trumps lækkuð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 06:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Of seint
22.3.2024 | 04:10
Hugsanlega hefðu fleiri tattú bjargað sambandinu. Hugsanlega ekki. En núna er orðið of seint að gera nokkuð. Svona er lífið.
Hollywood-stjörnur slíta trúlofuninni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Kalda stríðið langa
21.3.2024 | 03:26
Leiðinlegt hve Rússar eru alltaf óheppnir með valdamenn og pínlegt hve margir á Vesturlöndum, hinir svokölluðu nytsömu sakleysingjar (useful idiots), hafa stutt vonda rússneska valdhafa í gegnum tíðina. En þannig er þetta bara. Kalda stríðið heldur áfram.
Rússar segja Ísland styðja úkraínska nasista | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Glæpir og föndur
20.3.2024 | 05:05
Hvernig væri að taka almennilega á lífshættulegri glæpastarfsemi í landinu í stað þess að standa í svona föndri?
Vilja banna veðmál á kappleiki barna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 05:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Krísa á stjórnarheimilinu
19.3.2024 | 03:27
Stjórnarheimilið þarf á fjölskylduráðgjöf að halda áður en það breytist endanlega í sirkus. En kannski er skilnaður bara besta lausnin. Þetta gengur varla mikið lengur. Bjarni Benediktsson er bókstaflega orðin gráhærður.
Síðasti séns fyrir sjálfstæðismenn að sanna sig | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
TikTok og læsi
17.3.2024 | 20:59
Þetta er fínt framtak. En Þorsteinn Dagur segir:
Mesti lærdómurinn í lífinu, hann gerist í frístundinni, hann gerist ekki endilega í skólastofu eða þegar menntamálaráðuneytið skipar þér að læra betri íslensku.
Nýjustu rannsóknir sýna að þriðjungur drengja á Íslandi getur ekki lesið sér til gagns þegar þeir útskrifast úr grunnskóla. Þeir eru greinilega ekki að læra að lesa í frístundum heldur.
Það þarf að styrkja skólastarf og hvetja nemendur til að læra í skólanum og heima í stað þess að gera lítið úr skólastarfi. Það á að vera leikur að læra en til þess þurfa nemendur að leggja svolítið á sig, sjálfs síns vegna. Krafan um að nám eigi að vera afþreying endar með ósköpum. Ef TikTok leysir lestrarhæfni af hólmi erum við í vondum málum.
Dugar ekki að nöldra í ungmennum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Stríð og friður
17.3.2024 | 20:31
Nýjasti Forsetaframbjóðandinn, Halla Tómasdóttir, segir:
Ég held að það sé ákaflega mikilvægt að við séum þjóð sem reynir ekki að skipa okkur í lið heldur veljum frið. Við getum verið vettvangur þess í heimi þar sem aðrir velja stríð.
Ísland er nú þegar í liði. Það heitir NATÓ. Vill Halla að Ísland gangi úr NATÓ? Fyrst hún hóf máls á alvörumálum eins og stríði og friði verður hún að svara þessu. Klisjur og málskrúð duga ekki.
Halla meyr að fundi loknum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Inngildandi
16.3.2024 | 03:16
Í greininni stendur:
Segir Dagbjört frá heimasíðunni Miðju máls og læsis þar sem finna megi fjölbreyttar upplýsingar um ýmsa siði, allt varðandi inngildandi samfélag hjá okkur. . . .
Inngildandi samfélag. Orðið inngildandi er þýðing á enska orðinu inclusive en þetta hljómar hræðilega að mínu mati. En kannski er ég ekki nægilega inngildandi.
Ramadan-fræðsluefni aðeins til upplýsingar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Betrun eða refsing?
12.3.2024 | 03:57
Þegar kemur að glæpum og refsingu er sænska "betrunarleiðin" greinilega ekki alveg að virka. Kannski læra Íslendingar eitthvað af þessu. Nei nei, auðvitað ekki.
Sprenging í raðhúsi hefndaraðgerð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)