Vegir

Þetta er afleit hugmynd. Þar sem skattar eru jafn háir og á Ísland er lágmark að ríkið sjái um að leggja vegi.


mbl.is Gjald verði lagt á helstu stofnvegi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að hætta

Og hvað ætlar Birgitta sjálf að gera? Hún ætlar að hætta.


mbl.is „Hvað ætlið þið að gera í því?“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Án aðgreiningar?

Samfélag án aðgreiningar? Hvernig lítur það út? Aðgreining er hluti af tilverunni og hlýtur að vera hluti af skólastarfi. Aðgreining er ekki það sama og óréttlæti. Ef hugmyndir um samræmd próf er orðið dæmi um óréttlæti þá erum við komin í sósíalískt öngstræti. Vill einhver búa þar?


mbl.is Þurfum að hætta að breyta nemendum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að ganga á dyr

Sigmundur Davíð gekk á dyr í Panamaviðtalinu. Hann gekk á dyr þegar hann tapaði fyrir Sigurði Inga í formannskjöri Framsóknarflokksins. Nú er hann genginn úr Framsóknarflokknum. Gengur hann endanlega út úr íslenskri pólitík ef hann fær ekki það fylgi sem hann telur sig eiga skilið? 

Sjáum hvað setur. Hvað sem verður, þá óska ég honum velfarnaðar. 


mbl.is „Þetta er aftur orðið gaman“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Best fyrir

Sennilega er þetta skynsamleg ákvörðun hjá Birgittu. Fleiri stjórnmálamenn gætu tekið hana sér til fyrirmyndar að þessu leyti. Hvernig væri að allir stjórnmálamenn fengu "Best fyrir" merkingu? Væri það ekki best fyrir alla?


mbl.is Birgitta hættir eftir kjörtímabilið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Líf og heilsa

"Það er oft talað um að hlut­ir gangi í erfðir en ég held því fram að slíkt sé ekki lík­am­legt held­ur hug­lægt, við erf­um sög­urn­ar." Er lífsráðgjafinn í alvöru að afneita einni af grunnhugmynd líffræðinnar?


mbl.is Viska mömmu víða í mínum fræðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Glæpir og refsing

Kannski er ég voðalega gamaldags, en, ólíkt lögmanninum, finnst mér það hvorki hrópandi óréttlæti né fáránlegt að fangar séu læstir inn í klefum í hámarksöryggisfangelsi í fjóra og hálfan tíma.


mbl.is Lokaðir inni á opna deginum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fordómar

Eru þetta ekki horfordómar?


mbl.is Horaðar fyrirsætur fá ekki vinnu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Siðmenntuð lönd

En gerum við ekki kröfu um það í siðmenntuðu landi að lögum sé fylgt?


mbl.is „Ómannúðlegt“ að vísa þeim úr landi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband