Haraldur óhreini

Í Dirty Harry myndunum var Inspector Harry Callaghan (Clint Eastwood) alltaf skammaður af andfúla yfirmanni sínum ef hann olli eignaspjöllum. Er það sama uppi á teningnum í Borg óttans?

IMG_2671


mbl.is 4 lögreglubílar skemmdir eftir eftirför
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Úti í eyjum

Eyjamenn eru alltaf svolítið dramatískir, enda hefst saga heimkynna þeirra á því að Ingólfur Arnarson hefnir sín grimmilega á írsku þrælunum sem drápu fóstbróður hans, Hjörleif.  Hjörleifur hafði sagt þrælunum að vinna að akuryrju en þeir "voru þess ófúsir" og ákváðu að drepa hann og menn hans og flýja með konur þeirra út í eyjar. 

Hér er lýsing Jónasar frá Hriflu á því sem gerðist næst. Ingólfur mælti:

"Lítið lagðist hér fyrir góðan dreng, er þrælar skildu að bana verða, og sé eg svo hverjum verða, er eigi vill blóta." . . . Heldur hann nú með nokkra menn sjóleiðis vestur á bóginn, og finnur þrælana í eyjunum. Þeir urðu hræddir, er þeir urðu Ingólfs varir, enda beið þeirra bráður bani. Sumir féllu fyrir Ingólfi, en aðrir hlupu fram af háum hömrum og týndust þannig. Ingólfur gaf eyjunum heiti, það er þær hafa síðan, og nefndi þær Vestmanneyjar, því að Norðmenn kölluðu Írlendinga Vestmenn.

Menn voru ekkert að tvínóna við hlutina í gamla daga.

 


mbl.is Páli vikið úr fulltrúaráðinu í Eyjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lif og lífsspeki

Við ættum að hlusta á þessar ráðleggingar Önnu Sigfúsdóttur.

Í Kanada var kona sem hafði náð hundrað ára aldri spurð hvert leyndarmálið að langlífi væri. Hún svaraði að bragði: "Skiptu þér ekki af því sem þér kemur ekki við", sem var bæði nett skot á hnýsna blaðamanninn og svar við spurningu hans.


mbl.is Mikilvægt að æsa sig ekki um of
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 14. júní 2018

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband