Kanadísk krísa

Judy Wilson-Raybould var leyst frá störfum sem dómsmálaráðherra. Flestir telja að ástæðan hafi verið sú að hún neitaði að láta undan þrýstingi Trudeaus. Það sem gerir þetta mál sérlega erfitt fyrir Trudeau er að hann boðar bæði femínisma og réttlæti fyrir frumbyggja. Judy Wilson-Raybould er kona og frumbyggi. Hann skipaði hana í embætti en leysti hana svo frá störfum. Hún fékk annað starf í stjórninni, en hún sagði upp, því, að hennar mati og að mati meirihluta Kanadabúa, kom Trudeau ekki fram við hana á réttlátan hátt. Ímynd Trudeaus er að hann sé góði kallinn. Núna lítur hann út eins og vondi kallinn. Núna reynir virkilega á stjórnkænsku og heilindi hans.


mbl.is Mesta krísa Justin Trudeau til þessa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 3. mars 2019

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband