Lög og helgisiðir

Þegar helgisiðir stangast á við lög í frjálslyndu lýðræðisríki ber iðkendum trúarbragða að virða landslög. Málið er ekki flóknara en það.

Íslensk stjórnvöld eru ekki að „beita sér gegn helgisiðum gyðinga". Það eru strámannsrök. Stjórnvöld eru að vernda rétt barna.


mbl.is Leggst gegn banni við umskurði drengja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Nákvæmlega. Punktur.

Sveinn (IP-tala skráð) 5.11.2013 kl. 20:51

2 identicon

Bara smá punktar

1) Alveg sama hvaða fræði- eða vísindagrein þú skoðar, eru "umskornir" gyðingar það algengir að leiða má líkum að því siðmenntað nútímasamfélag væri alls ekki til án þeirra. Gyðingar eiga næstum 40% nóbelsverðlaunahafa frá upphafi.

2) Gyðingar hafa stundað umskurð í 5000 ár. Afarsjaldan hafa komið upp einhverjir kvillar og er þetta með hættuminnstu aðgerðum þegar skoðuð eru % mistaka.

3) Í Evrópu á miðöldum létu prestar myrða umskorna, líka þá sem höfðu játast kristni, ef þeir héldu áfram að umskera börn sín.

4) Hitler lét banna umskurð.

5) Gyðingahatur varð næstum til að útrýma gyðingum fyrir bara 60 árum. Gyðingahatur er það mikið í nágrannalöndum okkar í dag að stórhluti íbúa Malmö til að mynda hefur flúið borgina (undan ofsóknum harðlínu Islamista í þessu tilfelli, ekki nazista eins og fyrir örfáum áratugum.

6) Þar sem skv. Gyðingdómi er umskurður eins nauðsynlegur og skírn í Kristindómi er um að ræða eiginlega upprætingu menningarinnar, menningarlega útrýmingu og einmenningu (fasisma) ef þessi siður er bannaður

7) Allir sem hugsa lengra, og eru færir um hugsun yfirhöfuð, hljóta að sjá það er skrýlsmennska og rasismi að banna þennan sið.

NYC (IP-tala skráð) 6.11.2013 kl. 05:39

3 identicon

PS: Það hafa fleiri börn látist við að fá göt í eyrum en vera umskorin. Að deyja af völdum umskurðar gerist á margra, margra áratuga fresti almennt séð. Fari barnið til læknis og njóti aðstoðar nútímavísinda er nær ómögulegt barnið deyi við þessa athöfn.

Fjöldi stúlkubarna hefur dáið við að fá göt í eyrum, afþví það er stundum gert á hárgreiðslustofum, og oft hafa komið upp tilvik út í heimi þar sem nálin er ekki alveg hrein og barnið deyr úr alnæmi.

Á að banna að gata börn í eyrun, eins og, því miður, yfirgnæfandi meirihluti Íslendinga virðist gera meðan þau eru enn á grunnskólaaldri? Afhverju? Afhverju ekki? Afþví meirihlutinn ræður og skal traðka á minnihlutanum, sparka í hann og útrýma honum, annað hvort eiginlega með morðum, eða óeiginlega með að banna siði hans og venjur, þó um sé að ræða siðferðilega æðri menningu, í þeim skilningi hún hefur lagt okkur til mikið af okkar læknavísindum, siðferði og fræðimennsku, en hvað hafa Íslendingar gert fyrir gyðinga? Leyft börnum í New York að horfa á Latabæ? Jeiiii! Go Íslendingar?

NYC (IP-tala skráð) 6.11.2013 kl. 05:43

4 identicon

Athugum svo eitt í viðbót. Sagan sýnir að gyðingar hækka menningartíðni þeirra þjóða sem þeir dvelja meðal, fjölga afreksmönnum og koma viðkomandi þjóð á blað sögunnar. Gyðingdómur er besta hugsanlega fjölmenningarlega viðbótin. Þeir bera virðingu fyrir öðrum, kenna fjölhyggju og umburðarlyndi, og banna trúboð í öllum myndum, yfirtroðslu og vanvirðingu, en banna þó engum að taka þeirra trú að upplýstu máli og kenna jöfnuð og virðingu. Ísland á lítið skilið nema sökkva í sæ bjóði það slíkt fólk ekki velkomið. Við eigum þegar nokkur mannslíf á samviskunni síðan í WW2 þegar ráðamenn hér sögðu fólki að snúa við og sendu beint í útrýmingarbúðirnar. Það er blóðug skuld og hana þarf að bæta fyrir. Sýnum smá manndóm, til tilbreytingar og að við séum upplýst og siðmenntuð þjóð.

NYC (IP-tala skráð) 6.11.2013 kl. 05:50

5 identicon

Frjálslyndi er ekki til þar sem meirihlutinn má valltra yfir meirihlutann, jafnvel þegar fleiri deyja við að fá göt í eyrum en drengir sem gangast undir þessa aðgerð. Það er ekki frjálslyndi, það er menningarleg útrýming og fasismi, grimmd og einelti.

Lýðræði sem ekki býr yfir frjálslyndi umbreytist fljótt í einelti. Þetta er það eina sem næstum allir stóru þjóðfélagsfræðingar sögunnar voru 100% sammála um, og eru enn í dag.

Hitler var lýðræðislega kjörinn leiðtogi. Manna sem lögðu þann skilning í lýðræði að það þyrfti ekki að innihalda fjölmenningarlegt umburðarlyndi og leyfa öðrum að viðhafa sína siði og menningu, heldur mætti meirihlutinn misnota minnihlutann. Slíkt "lýðræði" endar í helvíti á jörðu. Þýskaland WW2 er bara 70 árum og ekki svo mörgum mílum eða menningarlega langt í burtu og þeir sem styðja við mennigarlega útrýmingu kynda undir hatur, einelti og mögulega morð, þó stigsmunur sé þarna á, hvetja svona lög þá áfram sem vilja ganga lengra. Saga mannkyns sýnir nógu mörg dæmi um það svart á hvítu.

NYC (IP-tala skráð) 6.11.2013 kl. 06:01

6 identicon

Ætlaði að segja að lýðræði sem ekki innifelur fjölmenningarlegt umburðarlyndi umbreytist fljótt í EINRÆÐI. Þetta er staðreynd og þú þarft ekki að vera hámenntaður í félagsfræði, stjórnmálafræði, sögu eða mannfræði eða bara hafa góða almenna menntun, til að vita þetta. Þetta er eitt af þeim örfáu hlutum sem næstum allir gömlu risarnir voru sammála um. Við erum að tala um lögmál í mannlegu samfélagi um hið brothætta fjöregg raunverulegs lýðræðis, sem hingað til hefur hvergi þrifist þar sem gyðingar eru ekki velkomnir.

NYC (IP-tala skráð) 6.11.2013 kl. 06:03

7 identicon

"Hitler lét banna umskurð."

Hitler burstaði líka á sér tennurnar. Ég geri því ráð fyrir því að við þurfum að hætta því svo að við séum ekki eins og hann.

Hættu að draga Hitler og nasisma inn í þessa umræðu, það er svo ógeðslega ómálefnalegur punktur að fólk hættir sjálfkrafa að hlusta á þá sem notast við þá hækju.

Einar (IP-tala skráð) 6.11.2013 kl. 15:36

8 identicon

Menningarleg útrýming er yfirleitt fyrsta skrefið að því að normalisera líkamlega útrýmingu fólks. Miðaldakirkjan lét banna þetta líka á mörgum stundum og ýmsir harðstjórar ólíkra tíma. Af menningarfyrirlitningu og mannhatri. Þegar það er auðsannað að fleiri deyja af völdum þess að fá göt í eyrun en drengir sem eru umskornir, og það er nær ómögulegt drengur deyji svo lengi sem þetta er læknisfræðileg umskurn (og gerist bara á áratuga eða alda fresti jafnvel þegar hún var ekki til, og breska kóngafjölskyldan, afþví þau telja sig afkomendur Móses þrátt fyrir aðra trú, hefur alltaf stundað hefðbundinn gyðinglegan umskrun í sinni fjölskyldu, undarlegt en satt), þá sést best að þetta er ekki mannúð heldur dæmi um hroka meirihlutans sem telur sig hafa rétt á að valltra yfir minnihlutann. Í tilfelli minnihlutahóps sem hefur bannað trúboð í meira en 2000 ár og innrætir sínu fólki menningarlega fjölhyggju og blátt bann við menningarlegri innrætingu, er það sérlega ljótt. Og í ljósi þess engin þjóð á fleiri nóbelsverðlaunahafa í læknavísindum og engin íslensk fjölskylda á ekki þó nokkra fjölskyldumeðlimi sem væru ekki á lífi væri ekki fyrir afrek gyðinga og meðöl sem þeir hafa fundið upp, þá er þetta sérlega fyrirlitlegt. Villtu ekki bara að einhver Pýgmí komi út úr frumskóginum og banni okkur að skíra börnin okkar og telji sig gera það í fullum rétti? Það væri sanngjarnara en við séum að segja helstu velgjörðarmönnum okkar til.

NYC (IP-tala skráð) 6.11.2013 kl. 23:13

9 identicon

Fylgdu bara þeirra fordómi og láttu aðra í friði, nema blá nauðsyn krefji annað. Það var sú hugsun sem bjó til vestrænt velferðarsamfélag. Og gyðinglegu áhrifin þar voru stærri en menn halda og engin tilviljun það gerðist allt á sama tíma og gyðingar fóru loksins að mega sækja sér menntun og gegna opinberum störfum. Þeir höfðu sínar leiðir og ákveðnir áhrifamenn þeirra ákváðu að fjárfesta í siðvæðingu vestræns samfélags. Það var það sem hafði úrslitavaldið að við ákváðum að gera fjölhyggju líka að okkar og fara að hegða okkur eins og siðmenntað fólk.

NYC (IP-tala skráð) 6.11.2013 kl. 23:15

10 identicon

Til gagns og gamans fyrir fólk ekki langt undir meðalgreind, meðalfært í ensku, fært um basic rökhugsun, sanngirni, siðferði og að vera fært um að hugsa út fyrir titlinginn á sér. http://www.huffingtonpost.ca/sheryl-saperia/infant-circumcision-canada_b_1646749.html

Truth be told (IP-tala skráð) 6.11.2013 kl. 23:46

11 Smámynd: Wilhelm Emilsson

Takk fyrir að líta við, Sveinn, "NYC", Einar, og "Truth be told".

 "NYC" og "Truth be told". Trúið því endilega sem þið viljið. En ef þið eruð að reyna að sannfæra aðra um ykkar skoðanir og fá þá á ykkar band, þá legg ég til að þið notið aðrar aðferðir en hysteríu og dónaskap. 

Góðar stundir.

Wilhelm Emilsson, 7.11.2013 kl. 03:11

12 identicon

Sannleikurinn er ekki hystería og dónaskapur. Ég hef alvöru menntun og veit um hvað ég er að tala. Kynntu þér söguna og talaðu svo. Annars tekurðu þátt í hörmungum framtíðarinnar, og eins og lögreglan segir "Vanþekking á lögunum afsakar ekki glæpinn". Sagan starfar eftir ákveðnum lögmálum og ofsóknir og útrýming menningar byrjar í smáum skrefum og þróast yfir í hreint þjóðarmorð. Ef maður tekur fyrsta skrefið ber maður samábyrgð á því síðasta.

NYC (IP-tala skráð) 7.11.2013 kl. 11:57

13 identicon

Þannig að það er bara stigsmunur á því að bann það að afmynda kynfæri barna og að fara í þjóðarmorð?

Spjoð (IP-tala skráð) 7.11.2013 kl. 15:12

14 Smámynd: Wilhelm Emilsson

NYC, eins og Spoð bendir á, þá er brestur í röksemdafærslu þinni. Og talandi um lög, á Íslandi, sem er frjálslynt lýðræðisríki, eins og menn vita, er bann við umskurði drengja. Þú hefur fullan rétt til að vera á móti því banni, að stjálfsögðu.

En að tengja bann við umskurði drengja við þjóðarmorð er bæði órökrétt og ósmekklegt, því það gerir lítíð úr bæði Íslendingum og fórnarlömbum þjóðarmorða.

Wilhelm Emilsson, 7.11.2013 kl. 17:00

15 identicon

Það er ekki órökrétt, í ljósi þess að einmitt með slíku banni hafa fjölmargar tilraunir til þjóðarmorðs á þessum þjóðflokki byrjað. Umskurður er langmikilvægasta athöfn gyðinglegs trúarlífs. Hún er vígsla inn í menninguna, eins og skírnin í kristni. Og hefur í 5000 ár átt að framkvæma á áttunda degi. Ef þú lest greinina sem linkað var á þarna áðan sérðu þetta er elsta aðgerð heims og ein sú áhættuminnsta. Afhverju villtu ekki banna að gata eyru barna? Afhverju er það ekki limlesting þó fleiri deyji? Afþví þú ert ekki frjálslyndur, aðhyllist ekki fjölmenningu heldur trúir á menningarlegan rasisma og ruglast á yfirtroðslu og einelti meirihlutans og tilraunum til beinna og óbeinna útrýminga á minnihluta og ruglar því saman við "lýðræði" sem þú skilur ekkert hvað er. Farðu að lesa almennilega og reyndu að ná þér upp úr þessari hálfmenntun og skrýlsmennsku sem veldur því viðhorf þín byggjast á fordómum, geðflækjum, tilfinningasemi og fyrirlitningu í garð annarra. Það er ekkert ógeðslegra eða óhuggulegra við umskurð en göt í eyrum. Og hann er mun hættuminni og ef framkvæmdum af læknum nær algjörlega hættulaus. Þú getur ekki horfst í augu við sjálfan þig en ef allir væru eins og þú værir alls ekkert frjálslyndi lengur við lýði. Það er upplýstara fólk en þú sem heldur þessu samfélagi á lífi og er ástæða þess það er ekki löngu liðið undir lok og horfið í fasismans gin, eins og helstu fræðingar um samfélög manna hafa alla tíð óttast, því afarstutt er milli einræðis og lýðræðis og hið síðarnefnda breytist auðveldlega í hið fyrrnefnda og tilraunir eins og þínar til að koma á einmenningu eru stysta leiðin þangað. Þýskaland var heimsins þróaðasta ríki á sínum tíma en þeir kusu yfir sig einmenningu og munu aldrei rísa úr öskustónni. Þeir verða aldrei það sem þeir voru. Íslendingar munu tapa öllu sínu ef við verðum einmenningunni að bráð.

NYC (IP-tala skráð) 7.11.2013 kl. 17:46

16 Smámynd: Wilhelm Emilsson

NYC, ertu að halda því fram að Íslendingar íhugi þjóðarmorð á gyðingum?

Wilhelm Emilsson, 7.11.2013 kl. 22:09

17 identicon

Ég er að halda því fram að allir sem eru vellesnir í sagnfræði og þekkja sögu gyðinga viti að þetta var oft fyrsta skrefið. Þeir sem hata og fyrirlíta nota svona skref til að normalisera næstu skref. Gengið er lengra og lengra og loks byrjað að myrða. Flestir sem taka þátt í svona eru fáfróðir og illa lesnir páfagaukar sem bara vita ekki betur. Eins og Höður í Baldurssögu, blindir og vita ekki hvað þeir gera. En það er hið illa sem stýrir þeim og á upptökin af þessu. Angela Merkel veit það og þess vegna lét hún afstýra svona banni í Þýskalandi. Nýnazistar voru langæstastir í að banna þetta þar og það eru þeir sem dreifðu þessum hugsunarhætti um Evrópu og þaðan.

NYC (IP-tala skráð) 8.11.2013 kl. 12:55

18 identicon

Það sem mun gerast er að allir trúaðir gyðingar munu flytjast af landi brott. Sem er ekkert skárra en þegar við rákum þá út á gaddinn í annarri heimsstyrjöldinni og sendum þá beint í gasklefana. Þetta er eins og að banna kristnum manni að skíra sitt barn. Bara mun alvarlegra í raun og veru, því skírnin er óljósari og var ekki til í frumkirkjunni meðal barna. Börn hafa hins vegar verið umskorin í Gyðingdómi í 5000 ár, drengir það er að segja. Gyðingar hafa aldrei á nokkrum tíma umskorið stúlkubörn, sem er ekki sambærilegt. Umskurður drengja er táknræn athöfn og trúarleg og tengist ekki hlutum eins og kynlífi.

NYC (IP-tala skráð) 8.11.2013 kl. 12:57

19 Smámynd: Wilhelm Emilsson

Þú svaraðir ekki spurningunni, NYC. Þess vegna spyr ég á ný, Ertu að halda því fram að Íslendingar íhugi þjóðarmorð á gyðingum?

Wilhelm Emilsson, 8.11.2013 kl. 17:09

20 identicon

Þetta er stórkostlega heimskuleg spurning. Þjóðverjar almennt, árið 1930, íhuguðu ekki þjóðarmorð á gyðingum. Ekki heldur Spánverjar rétt fyrir tíma Ísabellu. Ef þú ert ekki nógu greindur til að skilja hvað er verið að fara, þá er það bara því miður. Morð og hryllingur verða aldrei til af yfirhuguðu ráði almennings. Heldur afþví hinir heimsku meðal þeirra láta hina illu spila með sig. Illskan á tímum alþjóðavæðingarinnar og alþjóðaþorpsins á yfirleitt upptök sín utan landssteinanna og í tilfelli dvergríkis sem ekki er byggt meira sjálfstætt hugsandi fólki en gengur og gerist er það nær alltaf svo. Héðan voru sendir burt gyðingar beint í opinn dauðann í annarri heimsstyrjöldinni. Þau áhrif komu ekki héðan frá Íslandi og ekki þessi þankagangur umboðsmanns barna heldur. Þar er páfagaukaháttur, ósjálfstæði í hugsun og leiðitamt lundarfar hinnar heimsku á ferð rétt eins og í stríðinu.

NYC (IP-tala skráð) 9.11.2013 kl. 18:25

21 identicon

Það er einföld lausn við flestu böli heimsins. Einfaldlega sú að hálfmenntaðir og fáfróðir leggi minni stund á að leysa lífsgátuna og skipta sér af öðru fólki og meiri á að bæta sjálfan sig. Þetta sem Jesús sagði með bjálkann og flísina. Þeir sem eru illa lesnir og ekki sérlega greindir ættu ekki að gerast allsherjar dómarar yfir lífi annars fólks, heldur láta sitt eiga sig, og ekki hrófla við 5000 ára gamalli menningu, heldur hafa hemil á meðfæddum eineltistendensum sínum og valdasýki. Illskan ætti sér ekki viðreisnarvon í heimi þar sem þetta væri haft að leiðarljósi. Þú hefur augljóslega ekki mikla menntun og ert ekki fær um skynsamlega hugsun, ef marka má heimskulegar spurningar þínar sem bera vott um þér er gjörsamlega fyrirmunað að átta þig á sögulegu orsakasamhengi.

NYC (IP-tala skráð) 9.11.2013 kl. 18:28

22 Smámynd: Wilhelm Emilsson

NYC, þú hefur ekki svarað spurningunni.

Ertu að halda því fram að Íslendingar íhugi þjóðarmorð á gyðingum? Ég get umorðað spurninguna ef þú vilt. Ertu að halda því að illir menn sem stjórna íslenska ríkinu íhugi þjóðarmorð á gyðingum?

Og hér er önnur spurning fyrir þig, Hvers vegna felurðu þig á bak við dulnefni?

Wilhelm Emilsson, 9.11.2013 kl. 20:24

23 identicon

Ég er að halda því fram að þeir sem láta undan svona þrýstingi, sem er langt því frá íslenska ríkið í heild sinni, heldur eingöngu þessi umboðsmaður, geri það af greindarskorti og skorti á yfirgripsmikilli menntun og víðtækri söguskoðun. Páfagaukalærdómur í skóla dugar ekki til, og þeir sem ekki hafa aðra menntun en það, og hafa ekki greind til að gegna svona embættum, ættu að láta það eiga sig. Þeir menn sem sendu gyðingana héðan í burtu í útrýmingarbúðirnar trúðu því í fyrsta lagi 1) að það væri engin helför í gangi 2) að þeir væru að gera gott 3) að þeir væru að breyta siðferðilega rétt. Hálfvitar, fávitar og greindarskertir eru 99% af vandamálinu. Illmennin 1%. Illmennin búa ekki hérna á Íslandi. Fávitarnir hlýða þeim samt. En sem betur fer eru líka greindir menn í okkar ríkisstjórn, og sem betur fer eru menn þarna eins og Angela Merkel, Obama og aðrir aðilar sem best er að nefna ekki á nafn, til að setja okkur skorður og tryggja endanlegan sigur fasismans. Merkel, hið raunverulega höfuð ESB, hefur bannað afnám umskurðar í eigin landi og fordæmt sambærilegar vangavelltur í nágrannalöndum sínum. Þrýstingur verður settur á þessi lönd, óbeinn, og þau verða sett út af kortinu ef þau dirfast að stefna fjölmenningu og umburðarlyndi í hættu. Treystu mér. Ekki grafa gröf þinnar eigin þjóðar. Það er það sem gerist þegar menn reyna að útrýma öðrum. Afþví það eru aðilar þarna úti sem hugsa út fyrir hagsmuni þjóða, landa og hópa með hagsmuni alls mannkyns um alla framtíð að leiðarljósi. Og þeir aðilar leyfa ekki einmenningar-tendensa, einelti og annað afturhvarf til miðalda.

NYC (IP-tala skráð) 11.11.2013 kl. 06:33

24 identicon

Ætlaði að sjálfsögðu að segja tryggja að komið verði í veg fyrir endanlegan sigur fasismans. Því hvað er fasismi? Kynntu þér sögu hans. Fasisminn er: Ein menning, einn siður, ein trú, ein skoðun, einn flokkur, allir að hugsa eins og ég, gangið í takt við mig. Og hvern hatar fasisminn alltaf á öllum tímum meira en alla? Gyðinga. Afhverju? Afþví hugsjónir gyðinga eru í grunninn andstæðar hugsjónum fasista. Gyðingarnir eru réttu megin við strikið. Þess vegna munu þeir sem hafa hina stærri hagsmuni í huga halda þeim á lífi. Sama hvað menn reyna að uppræta siði þeirra eða þá sjálfa. Það mun ekki takast. Það gæti orðið stríð. Það gæti orðið blóðbað. Heimurinn rambar á barmi styrjaldar. En frelsið og bræðralag mannkyns mun sigra að lokum. Þá mun menningarlegt sjálfræði verða virt og enginn mun nokkurn tíman aftur dirfast að vega að tilveru annars. Kynntu þér hvernig þeir eru að gera þetta í Brasilíu. Brasilíu sem verður eitt af leiðandi löndum nýja heimsins. Þá sérðu hver framtíðin verður. Einmenning mun afnumin, afþví annars á mannkynið enga framtíð og á sér ekki viðreisnar von.

NYC (IP-tala skráð) 11.11.2013 kl. 06:38

25 identicon

Smá vísbending fyrir þig. Í framtíðinni verða menningarheimar varðir með vopnavaldi ef á þarf að halda. Þetta er þegar gert. Lögregla Frakklands og Bretlands vaktar gyðingaskóla fyrir árásum Islamista. Borgarstjóri Malmö er á svörtum lista fyrir að hafa ekki veitt sambærilega lögregluvernd. Að vega að menningarlegu sjálfræði og sjálfstæði verður gert að alþjóðlegum glæp. Nú þegar eru í undirbúningi lög hjá Sameinuðu Þjóðunum sem banna agressívt trúboð og annað sem ógnar tilurð annarra mennignarheima. http://www.huffingtonpost.com/2013/07/17/brazil-army-awa-tribe_n_3606666.html

NYC (IP-tala skráð) 11.11.2013 kl. 06:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband