Hverjum klukkan glymur

„Ekkert mál fyrir Jón Pál" og „Veriði hress! Ekkert stress!" eru orð sem allir Íslendingar þekktu á sínum tíma. Núna er að koma betur og betur í ljós, eins og lá stundum í loftinu þá, að málið var ekki svona einfalt. Kraftur Jóns Páls og hressileiki Hemma Gunn voru oft dýru verði keyptir.

Að fjalla á hreinskilinn hátt um fræga einstaklinga sem fallnir eru frá er af hinu góða, ef það er gert á fagmannlegan og nærfærinn hátt. Þegar fjallað er um þjóðþekkta Íslendinga er oft verið að fjalla beint eða óbeint um íslenska menningu og menningu yfirhöfuð og það á erindi við okkur öll.

Hér eru fræg orð Johns Donne í þýðingu Stefáns Bjarmans: 

Enginn maður er eyland, einhlítur sjálfum sér; sérhver maður er brot meginlandsins, hluti veraldar; ef sjávarbylgjur skola moldarhnefa til hafs, minnkar Evrópa, engu síður en eitt annes væri, engu síður en óðal vina þinna eða sjálfs þín væri; dauði sérhvers manns smækkar mig, af því ég er íslunginn mannkyninu; spyr þú því aldrei hverjum klukkan glymur; hún glymur þér.

Í tíð Johns Donne var kirkjuklukkum klingt þegar sóknarbarn dó.

Bless.  

 


mbl.is Jón Páll vissi að hann væri að deyja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Stefanía Jensdóttir

Tek undir þessa góðu hugleiðingu! Afturhvarf til heilinda, heilbrigðis, náttúru og látleysis er löngu hafið, ekki síst á Íslandi. Uppgjör við andstæður þessa er nauðsynlegt og gott að það sé gert af hluttekningu.

Jenný Stefanía Jensdóttir, 30.11.2013 kl. 02:40

2 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Að hann hafi vitað að hann væri að deyja...

Sá eða sú sem svona dellu lætur út úr sér, er ....

Halldór Egill Guðnason, 30.11.2013 kl. 03:34

3 identicon

Eitt eftirminnilegasta augnablik mitt úr barnæsku, var þannig að ég og Halldór litli bróðir vorum í heimsókn Reykjavík með mömmu og pabba og vorum nýkominn að norðan og við vorum í Miklagarði, ég og Halldór vorum að skoða He-man karla þegar ég allt í einu sé Jón Páll og bendi Halldór á hann, og svo fór ég til Jóns og bað hann að bíða meðan ég næði í pabba til að sýna honum hann og ætli Jón hafi ekki staðið þarna í örugglega 5 mín meðan ég náði loksins að finna pabba og sýna honum Jón. Það var ekkert lítið sem Jón Páll hefur lagt á sig til að gleðja krakka á þessum tíma og þessari stund gleymi ég aldrei enda töluðum ég og Halldór bara um Jón Páll það sem eftir var ferðarinnar.

valli (IP-tala skráð) 30.11.2013 kl. 12:37

4 Smámynd: Wilhelm Emilsson

Takk fyrir athugasemdirnar, kæru gestir.

Wilhelm Emilsson, 30.11.2013 kl. 19:47

5 identicon

Mjög vel skrifað. Þú ert frábær penni.

anon (IP-tala skráð) 1.12.2013 kl. 05:37

6 Smámynd: Wilhelm Emilsson

Takk, anon.

Wilhelm Emilsson, 2.12.2013 kl. 01:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband