Sarah Palin
21.1.2016 | 20:37
Grínið um Söruh Palin skrifar sig sjálft.
Sakar Obama um að hafa brugðist hermönnum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
21.1.2016 | 20:37
Grínið um Söruh Palin skrifar sig sjálft.
Sakar Obama um að hafa brugðist hermönnum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Sæll Wilhelm.
Ég held að fáir forsetar Bandaríkjanna hafi nokkru sinni
valdið þjóð sinni meiri vonbrigðum en einmitt Obama.
Að dómi flestra hefur hann brugðist á öllum sviðum.
Húsari. (IP-tala skráð) 21.1.2016 kl. 21:13
Takk fyrir að líta við, Húsari. En eru heimilisvandræði Palin fjölskyldunni Obama að kenna?
Wilhelm Emilsson, 21.1.2016 kl. 21:57
Það eru ekki nema 365 dagar eftir og við losnum við Óbummer og ég er sammála Húsari.
Svar við spurningu þinni Willhem er; já það er Óbummer að kenna. Sjúkrahús og heilbrigðiskerfið fyrir hermenn er í molum og það er Óbummer sem á að sjá til þess að það sé góð heilbrigðisþjónusta fyrir hermennina, sérstaklega þegar þeir koma af vígvöllunum.
Kveðja frá Houston
Jóhann Kristinsson, 21.1.2016 kl. 23:05
Takk fyrir að líta við, Jóhann. Þú segir nokkuð :)
Wilhelm Emilsson, 22.1.2016 kl. 06:07
Sæll Wilhelm.
Hér hefur Jóhann svarað þér svo að ekki verður betur gert.
Hélt að þér væri kunnugt um þessa stöðu mála og helsta
umkvörtunarefni almennings í Bandaríkjunum.
En þakka þér fyrir að birta athugasemdina sem er meira
en gerðist þar sem við skrifuðum báðir fyrir skemmstu.
Húsari. (IP-tala skráð) 22.1.2016 kl. 08:16
Reyndar hefur VA verið í rugli í áratugi og að kenna Obama um það er ansi kjánalegt.
Svo má þess geta að Track Palin hætti í hernum 2008 og þar að auki sá hann aldrei nein átök.
Hann var nú bara í því að keyra yfirmönnum um á græna svæðinu. Þannig að hann var ekki einu sinni í hernum þegar Obama var forseti né ætti hann að þjást af PTSD.
Líklegra er að hann hafi bara alltaf verið svona ruglaður. Enda er það umtalað að hann hafi bara farið í herþjónustu til að forðast fangelsisvist.
Sarah Palin og hennar fólk ætti bara að taka ábyrgð á sínum mistökum og sama má segja um hennar fjölskyldu. Þetta er nú ekki í fyrsta skipti sem lögreglan er kölluð til vegna slagsmála þeirra.
http://www.salon.com/2016/01/21/sarah_palins_delusional_blame_game_obama_isnt_responsible_for_her_sons_domestic_violence_charge/
Svo hefur Obama auk þess aukið fjármagn til hjálpar geðheilsu hermanna.
Halli (IP-tala skráð) 22.1.2016 kl. 13:21
Halli þú ert með ágiskun um Track Palin, ef ég man rétt þá var hann sendur til Aghanistan í fyrstu kvaðningu erlendis og að hann hafi farið í herinn til að losna við fangelsisdóm. Það má ekki trúa öllu eins og nýju neti sem lesið er á netinu.
Hitt er rétt að VA hefur verið í niðurníðslu í mörg ár, en munurinn er sá að Óbummer var með kosningaloforð að hann ætlaði að lagfæra VA kerfið. Það eru rúm 7 ár síðan Óbummer tók við forsetaembættinu og ekkert bólar á VA lagfæringuni.
364 dagar þangað til við losnum við Óbummer, sem betur fer.
Kveðja frá Houston
Jóhann Kristinsson, 22.1.2016 kl. 19:27
Ekkert mál, Húsari.
Takk fyrir athugasemdirnar Halli og Jóhann. Ef kenna á Obama um fjölskylduvandræði Palin fjölskyldurnar þá má kenna honum um hvað sem er. Það kemur mér á óvart að þið félagar Húsari og Jóhann takið þátt í fórnarlambsvæðingunni--en fólk kemur manni sífellt á óvart.
Wilhelm Emilsson, 22.1.2016 kl. 20:42
Jóhann, Track Palin var í Írak, ekki Afganistan.
Wilhelm Emilsson, 22.1.2016 kl. 21:06
http://www.politifact.com/truth-o-meter/promises/obameter/subjects/veterans/
Sýnist hann nú hafa gert ansi mikið. En kerfið var náttúrulega í algjörum molum eftir fyrri stjórn. En það er víst mikilvægara að vera í barnalegum sandkassaleik en að vita nokkurn skapaðan hlut.
Halli (IP-tala skráð) 23.1.2016 kl. 01:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.