Tilfinningalíf karlmanna

Ég hef lúmskt gaman af sjálfshjálparbókum og hef reyndar skrifađ inngang ađ einni í smásögu. Sú skáldađa sjálfshjálparbók heitir Face it! You're a Loser. En nóg um ţađ í bili. Hér er upphafiđ ađ íslenskum sjálfshjálpartexta sem kallast Tilfinningalíf karlmanna. Höfundurinn er Árni Ţór Hilmarsson. Stapaprent, prentsmiđja föđur míns og međeiganda hans prentađi!

Íslendingar hafa lengstum veriđ stoltir af uppruna sínum og sögu. Löngu horfnar hetjur aftan úr grárri forneskju eru okkur enn ljóslifandi og Íslendingasögurnar eru eilíft rannsóknarefni frćđimanna ţjóđarinnar. Ţegar viđ lítum nánar á hetjur Íslendingasagnanna kemur í ljós ađ ţađ eru ákveđin persónueinkenni sem söguritarar hafa dáđ í fari ţessara manna. Ţetta eru einkenni eins og óttaleysi, árćđi, tryggđ, vísdómur, miskunnarleysi, stolt og hefnigirni. Heiđur manna byggist á ţví ađ láta aldrei hlut sinn fyrir neinum. Í huga ţjóđarinnar hafa ţessir eiginleikar orđiđ ímynd karlmennsku. Samfara hetjudýrkuninni hefur ţví karlmennskudýrkunin samofist vitund ţjóđarinnar.  

Ţađ er mikiđ til í ţessu. "Aldrei hrćddur, aldrei kalt," er slagorđ hins hefđbundna íslenska karlmanns. Töffaraskapurinn, sem getur veriđ hressandi, en oft bara ţreytandi og lúđalegur sprettur ađ miklu leyti úr ţessum varđvegi, jarđvegi sem hefur svo blandast Hollywoodkappamenningu.

Af hverju er ég ađ pćla í ţessu? Jú, mér var bođiđ ađ halda fyrirlestur fyrir gamla háskólann minn, The University of British Columbia, Vancouver, um Íslendingasögur og íslenskar nútímabókmenntir. Mér finnst Halldór Laxness hafa gert hugmyndinni um hetjuskap snilldarleg skil í Gerplu. Segja má ađ bókin sé hetjuleg ađför ađ hetjuskap, en hún er ţó fyrst og fremst drepfyndin.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Einar Bragi Bragason.

ćja besti vinur minn farinn ađ blogga.....já ţetta er skrýtiđ, ţrátt fyrir ađ viđ höfum ekki sést í 10056 ár ţá ertu alltaf besti vinur minn(á ekki ađ hljóma vćmiđ) ţetta er bara svona.

Einar Bragi Bragason., 24.7.2007 kl. 21:09

2 Smámynd: Einar Bragi Bragason.

ertu enn ađ teikna

Einar Bragi Bragason., 24.7.2007 kl. 21:09

3 Smámynd: Wilhelm Emilsson

Kćri Einar Bragi.

Takk kćrlega fyrir hlý orđ í minn garđ. Viđ verđum endilega ađ hittast ţegar ég kem í heimsókn nćsta sumar.

Ég teikna nú ekki mikiđ ţessa dagana fyrir utan skrípamyndir á töfluna ţegar ég er ađ kenna!

Wilhelm Emilsson, 25.7.2007 kl. 02:35

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband