Framhaldssagan: Sjöundi kapítuli

"Það er svo margt að minnast á," sagði Sveinki og glotti.

"En flest af því er leiðinlegt, svo við skulum bara gleyma," sagði Hökki.

"Já, við skulum bara gleyma," svaraði Sveinki. "Djöfull er annars gott að hitta þig aftur."

"Sömuleiðis."

"Af hverju er svona langt frá því við hittumst?"

"Ertu með Alzheimer? Manstu ekki hvað gerðist?"

Sveinki strauk hendinni í gegnum burstaklippt hárið. "Slappaðu af, Hökki. Ég hef engu gleymt. Heyrðu, spilaðu 'Fire Woman' og  'Love Removal Machine' fyrir mig."

"CULT?! Hahaha. Þú varst alltaf með ömurlegan tónlistarsmekk. Cult? Kommonn. Ian Astbury gat aldrei gert upp við sig hvort hann væri Jim Morrison eða indíáni. Maðurinn er fífl."

"Fólk er fífl. Spilaðu lögin eða ég piparúða þig, auminginn þinn."

"Hahahaha. Gamli góði Sveinki. Bakk in blakk. Hahahaha."


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband