Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2013

Hverjum klukkan glymur

„Ekkert mál fyrir Jón Pál" og „Veriði hress! Ekkert stress!" eru orð sem allir Íslendingar þekktu á sínum tíma. Núna er að koma betur og betur í ljós, eins og lá stundum í loftinu þá, að málið var ekki svona einfalt. Kraftur Jóns Páls og hressileiki Hemma Gunn voru oft dýru verði keyptir.

Að fjalla á hreinskilinn hátt um fræga einstaklinga sem fallnir eru frá er af hinu góða, ef það er gert á fagmannlegan og nærfærinn hátt. Þegar fjallað er um þjóðþekkta Íslendinga er oft verið að fjalla beint eða óbeint um íslenska menningu og menningu yfirhöfuð og það á erindi við okkur öll.

Hér eru fræg orð Johns Donne í þýðingu Stefáns Bjarmans: 

Enginn maður er eyland, einhlítur sjálfum sér; sérhver maður er brot meginlandsins, hluti veraldar; ef sjávarbylgjur skola moldarhnefa til hafs, minnkar Evrópa, engu síður en eitt annes væri, engu síður en óðal vina þinna eða sjálfs þín væri; dauði sérhvers manns smækkar mig, af því ég er íslunginn mannkyninu; spyr þú því aldrei hverjum klukkan glymur; hún glymur þér.

Í tíð Johns Donne var kirkjuklukkum klingt þegar sóknarbarn dó.

Bless.  

 


mbl.is Jón Páll vissi að hann væri að deyja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af hverju?

Að hverju er kommúnistaáróður í Morgunblaðinu mínu? . . . Sorrí, ég réð ekki við mig! Tounge
mbl.is Útsölur í skugga ofbeldis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lög og trú

Að blanda saman landslögum og trú er vondur kokteill.
mbl.is Siðferðislögregla hellti niður áfengi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hefnd póstburðarmannsins


Enn eitt fórnarlambið

Enn eitt fórnarlambið. Þetta er allt vondu vinstrimönnunum að kenna. Che mala fortuna! Tounge
mbl.is Berlusconi sviptur þingsætinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Segðu ekki nei.

Vonandi endurskoðar Jack Gleeson þessa ákvörðun. Túlkun hans á illmenninu Joffrey Baratheon er mögnuð. Hann er svo vondur og þannig eiga vondu karlarnir að vera auðvitað. Vonandi hættir hann við að segja nei og segir kannski, kannski, kannski.
mbl.is Ætlar að hætta að leika eftir Game of Thrones
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

The Byrds, "Paths of Victory"


Paranoja?

Hefur hlerun átt sér stað á fundum? Er rökstuddur grunur um það? Eða eru ráðherrar ef til vill hræddir við að aðrir ráðherra séu að taka upp það sem fram fer á fundunum? „Paranoia strikes deep / Into your life it will creep / It starts when you're always afraid,“ sungu Buffalo Springfield.

Burtséð frá þessum vangaveltum má færa fyrir því góð rök að banna eigi notkun síma á mikilvægum fundum svo menn vinni sína vinnu en séu ekki endalaust í símanum.  


mbl.is Banna síma á ríkisstjórnarfundum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrrverandi

Maður getur nú skilið hvers vegna Nigella skildi við þennan mann.
mbl.is Segir Nigellu hafa neytt fíkniefna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ísrael og Bandaríkin

Utanríkisráðherra Ísraels, Avigdor Lieberman, sem The Jewish Daily Forward kallar „öfga þjóðernissinna", sagði nýlega að tengsl Ísraels við Bandaríkin væru að minnka og gaf til kynna að Ísrael ætti að leita sér að nýjum bandamönnum.

En forsætisráðherra Ísraels, Benjamin Netanyahu, sagði að enginn kæmi í staðinn fyrir Bandaríkjamenn. The Jewish Daily Forward kallar ummæli utanríkisráðherrans klúður. Það er því ólíklegt að skilnaður sé í aðsigi milli Ísraels og Bandaríkjanna. Þetta eru meira eins og hjónaerjur í traustu sambandi.

 

 



mbl.is Obama boðar Netanyahu á sinn fund
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband