Bloggfærslur mánaðarins, júní 2014

Fimmti meðlimurinn

Hver er fimmti gæinn (sá sem hefur lagt hönd á öxl James Hetfields)? Síðast þegar ég vissi voru bara fjórir meðlimir í Metalliku.

Fyrir nokkrum árum sat ég úti á veitingarstað í Vancouver, Gallery Café. James Hetfield kemur þar ásamt öðrum manni og talar við þjóninn. (Metallica var með hljómleika í borginni um kvöldið.) Hann er að leita að hamborgarastað og þjónninn útskýrir að staðurinn framreiddi ekki hamborgara.

Maður er einhvern veginn alltaf eins og asni þegar maður sér frægt fólk. Finnst að maður eigi að gera eitthvað, en vill samt ekki vera að bögga viðkomandi. Ég var að hugsa um hvort ég ætti að fá eiginhandaráritun hjá honum, þótt ég sé enginn rosa aðdáandi--keypti reyndar svörtu plötuna Metallica þegar hún kom út og sá heimildamyndina um bandið, Some Kind of Monster--en mér fannst að það gæti orðið vandræðalegt að tala við Hetfield, því í svipinn mundi ég ekki hvort hann héti Hetfeld eða Hetfield, Jim eða James. Ég ætlaði ekki á hljómleikana og hafði ekki fylgst vel með því sem Metallica hafði verið að gera, því mér fannst þeir vera farnir að hjakka svolítið í sama farinu. „Heyrðu, ég man ekki alveg hvað þú heitir, en ég veit að þú ert ekki Lars Ulrich." Svo lallaði hann burt með vini sínum. Hann var skælbrosandi og hávaxnari en ég átti von á. Rokkarar sem virka stórir eru oft stubbar, en ekki hann.  

Vancouver

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


mbl.is Rokkað aðalatriði á Glastonbury
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýjasta tækni og vísindi

Science marches on . . .

 


mbl.is Sjálfvirkur sæðismjólkari fyrir spítala
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Adolf

Það var áfall fyrir Hitler þegar hann komst að því hve margir hátt settir menn tók þátt í samsærinu gegn honum. Þegar hundurinn hans, Blondi, hlýddi ekki skipun frá honum sagði hann: „Horfðu í augun á mér, Blondi. Ert þú líka svikari eins og herforingjarnir mínir?" 

Heimild: John Toland, Adolf Hitler. 


mbl.is Ætluðu að sprengja Hitler
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Amma stendur með litla kútnum

En hann hegðar sér eins og óður hundur--hann bítur. Suárez hefur gert þetta áður. Hann beit mótherja 2013 og 2010. 

Bit

 

 

 

 

 

 

 

 


mbl.is Amma Suárez: Ráku hann heim eins og hund
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stalín er hér

Ég var að klára bók Roberts Service Stalin: A Biography. Pabbi Pútins vann í eldhúsinu bæði hjá Lenin og Stalín og Stalín var mjög hrifinn af góðum banönum. Það fauk í hann ef hann fékk lélega banana. Þetta vissi ég ekki. Það er svo margt sem ég veit ekki.

Í könnun sem gerð var í Rússlandi árið 2000 um sögu tuttugust aldarinnar kom í ljós að 26% aðspurðra dáðust mest að stjórnartíð Stalíns. Sumu fólki er náttúrulega ekki viðbjargandi.

Stalin

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


Gjafverð

Ef textinn seldist „ fyrir 2,045 banda­ríkja­doll­ara" eins og stendur í greininni, þá er það gjafverð. Þarna vantar „milljónir", þ.e.a.s. „fyrir 2,045 milljónir bandaríkjadollara". Af mörgum góðum er „Like a Rolling Stone" einn allra besti texti Dylans. Þetta lag á að vera til á öllum góðum heimilum :)

 


mbl.is Lagatexti Bob Dylan sló heimsmet
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eli Wallach

Eli Wallach var frábær í hlutverki Tuco í The Good, the Bad and the Ugly. Hér er lítið dæmi:


mbl.is Leikarinn Eli Wallach látinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eat 'Em and Smile

Eat 'Em and Smile
mbl.is Suárez gæti fengið tveggja ára bann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Námslán

En hún borgar sennilega námslánin til baka. Það er meira en margir gera.

 


mbl.is Fór í lýtaaðgerð fyrir námslánin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Malta

Bíddu, er Malta sjálfstætt ríki?

Malta

 


mbl.is Auðveldur 5:0 sigur á Möltu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband