Bloggfærslur mánaðarins, júní 2023

Kapítalisminn og vatnið

Stundum er sagt að kapítalistar eigi sér ekkert föðurland og því skipti gróði þá meira máli en menning, tunga og allt annað. Svo má líka halda því fram að þetta mál sé stormur í vatnsglasi. En það er vissulega rétt hjá Eríki að dropinn holar steininn.


mbl.is Segir gagnrýni á „Bon Aqua“ skiljanlega
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tillaga

Ég legg til að blaðamenn hætti nú þegar að nota þessa kjánalega slettu pop up. 


mbl.is Landsliðskokkurinn með „pop up“ á Sauðá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skaparinn og skrímslið

Sú staða sem núna er kominn upp í Rússlandi er að öllum líkindum ekki staða sem Pútín reiknaði með í upphafi árásarinnar á Úkraínu. Prigósjín er skrímsli Pútíns og þeir sem hafa lesið Frankenstein, eða séð útgáfu af sögunni í bíó, vita að skrímsli getur snúist gegn skapara sínum.

Pútínskir samsæriskenningasmiðir er að sjálfsögðu byrjaðir að halda því fram að vesturlönd séu á bakvið atburðina en það eru nú bara fastir liðir eins og venjulega. 


mbl.is Pútín: „Þetta eru landráð!“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rússnesk saga

Maður furðar sig á því að Prigó­sjín sé enn á lífi. Með hverjum degi sem líður aukast líkurnar á því að hann hljóti sömu örlög og Raspútín.


mbl.is Bræðravíg í uppsiglingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tölur

Fylgi Vinstri grænna er í sögulegu lágmarki, 5.7% samkvæmt Gallup. Einungis Flokkur fólksins mælist með minna fylgi, 5.5%. Skyldi fylgi Vinstri grænna fara upp eða niður eftir þessa ákvörðun? Flokkurinn virðist í útrýmingarhættu. Kannski þarf að friða hann.


mbl.is „Þruma úr heiðskíru lofti“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bíó

Í Tónabíói sá ég Apocalypse Now árið 1979. Myndin setti mark sitt á mig eins og marga aðra. Þetta er verk sem hægt er að horfa á aftur og aftur á sama hátt og maður getur hlustað endalaust á sömu tónlistina og skoðað sama málverkið ef listin er sönn.

 


mbl.is Bíósýningar hefjast aftur í Tónabíó
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skemmtileg leiðindi

Sumir eru skemmtilega leiðinlegir. Þingkonan og vistfemíníski græninginn Sandrine Rous­seau er gott dæmi um svoleiðis manneskju. 


mbl.is Gagnrýndur fyrir að þamba bjór (myndskeið)
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ró og friður

Í 8. grein "Reglugerðar um hávaða" (Stofnreglugerð 724/2008) stendur: 

Gæta skal sérstaklega að hávaðavörnum í og við leik- og grunnskóla sem og dvalarrými þjónustustofnana. 

Borgarar eiga rétt á því að njóta lífsins í ró og friði á eigin heimili.

 


mbl.is Körfuboltakörfur fjarlægðar af borginni 17. júní
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Forræðishyggja fyrir framtíðina

„Mér finnst al­gjör­lega óþolandi að ein­hverj­ir frek­ir aðilar á markaði stjórni reglu­verk­inu og verklag­inu með það hvernig Íslend­ing­ar um­gang­ast áfengi eða aðra hluti,“ seg­ir Sig­urður Ingi. Það er náttúrulega algerlega óþolandi að fullorðið fólk fái að ráða sér sjálft. Frekir forræðishyggjusinnar, helst Framsóknarmenn, eiga auðvitað að stjórna því hvernig Íslendingar umgangast áfengi og aðra hluti. "Frelsi er helsi!" og "Vanþekking er styrkur!" eins og Stóri bróðir benti borgurum Oceaníu á. Við þurfum að læra að elska Stóra bróður. Það gerði Wilson Smith að lokum. Þá leið honum miklu betur.


mbl.is Frekjur eiga ekki að stýra áfengisumgengni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einföld lausn

Það er til einföld lausn á áfengisvandanum. Að taka upp Íslamstrú. Múslimar mega ekki drekka áfengi. Íslam er svarið! Alla vega ef við viljum leysa áfengisbölið wink


mbl.is Telur nálægð við matvöru varasama
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband