Bloggfærslur mánaðarins, september 2013

Framhaldssagan: Áttundi kapítuli

  Síðustu tónar “Love Removal Machine” dóu út í rykmettaðri stofunni.

            “Heyrðu, Hökki, hvað er í gangi með þessar konur sem leigja hjá þér?” sagði Sveinki svín.

            “Hvað er í gangi hvað?” svaraði Hökki hundur.

            “Þú veist alveg hvað ég er að tala um.”

            “Nei.”

            “Við getum gert þettta ðe hard vei, eða ðe ísí vei.”

            “Ertu að hóta mér ofbeldi.”

            “Ég er meira svona að lofa þér því, nema þú komir klín.”’

            “Ókei, fyrst þú biður svona fallega, “ sagði Hökki og tók sígarettu úr sígarettuveski úr silfri, kveikti í henni og fékk sér smók. “Þrjár konur sem hafa leigt hjá mér hafa sakað mig um kynferðislega áreitni.”

            “Ég verð að játa að þetta kom mér á óvart. Þú ert náttúrulega skepna, en einhvern veginn átti ég ekki von á þessu.”

            “Nei, ekki ég heldur.”

            “Hvað áttu við.”

            “Fyrst verið er að ljúga upp á mig sökum, hefði ég haldið að einhverju öðru en þessu væri logið upp á mig. Svo væri líka hægt að segja bara sannleikann. Ég meina það er af nógu að taka.”

            “Æi, Hökki, reyndu ekki að þræta. Það er svo rosalega klisjukennt. Auðvitað ertu sekur.”

            “Það er svolítið sem þú veist ekki um mig.”

            “Ég veit allt um þig. Ég þekki þig og þitt fólk.”

            “Nákvæmlega. Þú mannst eftir Stulla frænda.”

            Sveinki svín svaraði ekki.

            “Jebb,” sagði Hökki.

            Sveinki var enn orðlaus.

            “Þú ert nú frekar lélegur rannsóknarlögreglumaður verð ég að segja. Komm onn, var þetta ekki obvíus? Kínverskur silkisloppur, rándýrir leðurinniskór, og sígarettur með gylltum fílter.”

            “Ég hélt bara að þú værir svona mikill Oscar Wilde aðdáandi.”

            “Sem var annað risaklú.”

            “Ekki endilega. Ég hélt bara að þú værir svona flókinn persónuleiki.”

            “Ég er það auðvitað. En alla vega, ef ég hefði verið að áreyta einhvern kynferðislega þá myndi ég frekar hafa leitað á Tinna eða Prins Valíant. Það hef ég reyndar aldrei gert og ætla mér ekki að gera úr þessu. Ef þú trúir mér ekki geturðu spurt þá sjálfur.”

            “Leigja þeir hjá þér?”

            “Já, þeir voru í húsnæðishraki. Það er djöfulli erfitt að fá leigt í þessari borg. Langar þig að hitta þá?”

 


"tmjög" traust staða

Hm. Hvort á maður að trúa The Guardian eða íslenskum bankastjóra?

Til að gera þessa blaðagrein aðeins meira traustvekjandi væri ráð að láta ekki bankastjórann segja stöðu Landsbankans vera "tmjög trausta".

Nýjustu fréttir:

Búið að breyta "tmjög" í "mjög". Gott mál. 


mbl.is Landsbankinn ekki á leið í þrot
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Leiðin til ömurðar

Var það ekki Hayek sem samdi bókina Leiðin til ánauðar? Ég nennti aldrei að lesa þá bók, en mér fannst titillinn góður. Ef ég væri vinnusamari myndi ég skrifa bók sem héti Leiðin til ömurðar og hún yrði um lið sem lætur of mikið á sér bera í fjölmiðlum. Við vitum öll um hverja ég er að tala. "We No Who U R" söng Nick Cave.

Næsta bók myndi svo heita Frelsi til að gera sig að fífli

 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband