Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2014

Kínverskt lýðræði

Já, frjálsar kosningar leiða bara til óreiðu. Kínverskt lýðræði er miklu betra. Velkomin í frumskóginn.

 

 


mbl.is Fjöldamótmæli í Hong Kong
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skiluru?

Ég sakna Silvíu Nætur.

 


mbl.is Kjaftfor amma fræg fyrir hetjudáð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Neil Young, "On the Beach"

Þetta er annar skilnaður Neil Youngs. Hann er skilnaðarbarn og skilnaður, upphaf og endalok vináttu og sambanda, hafa alltaf verið þemu í textum hans.

Lagið "Don't Be Denied" byrjar til dæmis svona:

When I was a young boy,

My Mama said to me,

"Your Daddy's leaving home today.

I think he's going to stay."

We packed up all our bags

And drove out to Winnipeg.

Hér kemur lagið "On the Beach", eitt besta tilvistarkreppulag Youngs. Graham Nash leikur sérleg vel á Wurlitzer píanó, sóló Youngs er fallega brothætt, allt virkar. Platan seldist illa, en Young kærði sig kollóttan um það.

All my pictures are falling

From the wall where I placed them yesterday

The world is turning

I hope it don't away

. . .

Though my problems are meaningless

That don't make them go away

 

 


mbl.is Skilja eftir 36 ára hjónaband
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

2+2=5

Rússar halda áfram að neita því að rússneskir hermenn séu í Úkraínu. Og þegar tíu rússneskir fallhlífahermann voru teknir til fanga þar nýlega var svar Rússa að hermennirnir hefðu verið í Úkraínu „fyrir slysni".

Tveir plús tveir eru fimm.

Heimild: http://www.bbc.com/news/world-europe-28934213 


mbl.is „Gríman er að falla“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Halal Kitty

Svona myndi Hello Kitty líta út í strangtrúuðu íslömsku ríki, að mati teiknara, þar sem tilveran er flokkuð niður í það sem er „halal" (leyfilegt) og „haram" (bannað). Sennilega þyrfti hún að fjarlægja bleiku slaufuna. Hún er full glannaleg.

Halal Kitty

 


mbl.is Hello Kitty er ekki kisa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Veröld sem var

Það jafnaðist fátt á við vegaborgara í Botnskála. Nú lifir hann í minningunni.
mbl.is Sjoppur urðu göngum að bráð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Um nöfn

Mér finnst Moon Unit Zappa með eftirminnilegri nöfnum mannkynssögunnar. Hér er „Willie the Pimp" með Frank Zappa. Captain Beefheart syngur.

 


mbl.is Gefa börnunum skrýtin nöfn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rannsóknin rannsökuð

Sem sagt, þegar lekamálinu lyki þyrfti að rannsaka rannsóknina. Þetta mál er að verða að framúrstefnuljóði.

 


mbl.is „Svo kom gusa af gagnrýni“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fólk í fréttum

En ljóta fólkið? Var því ekki hleypt inn?

 


mbl.is Fallega fólkið mætti á Timberlake
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

The Not Quite 20/20 Experience

Þetta er svona Spinal Tap móment. En það verður að segjast eins og er að „Are you still with me, Kópavogur!" hljómar ekki alveg nógu töff.

Að vita ekki í hvaða borg maður er eitt af vandamálum skemmtikrafta. Að minnsta kosti sagði hann ekki, „Hello, Cleveland!"


mbl.is Gríðarleg stemning á Timberlake
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband