Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2014

Arabíski veturinn

Fyrst kom arabískt vor. En sumarið kom aldrei. Svo kom arabískt haust og nú virðist vera kominn arabískur vetur. En eins og Shelley sagði: „If Winter comes, can Spring be far behind?" Kannski. En þetta tekur allt sinn tíma og kostar baráttu og blóð.

P. B. Shelley

 


mbl.is Mannfall á byltingarafmæli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Umtal

 

Þetta er good for business. Eins og Lord Henry segir í The Picture of Dorian Gray: "there is only one thing in the world worse than being talked about, and that is not being talked about."

Oscar Wilde

 

 

 


mbl.is Bieber gæti verið vísað úr landi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hættuleg hætta

Já, varasöm ísing getur verið varasöm. Hættuleg hætta er líka hættuleg. Tounge
mbl.is Vara við varasamri ísingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Barnsleg gleði

Kannski er Bieber svona barnslega glaður vegna þess að hann heldur að núna sé hann loksins orðinn ekta „gangsta". Hann hefur reynt að vera það í svolítinn tíma. Mikið gaman.

Bieber

 

 


mbl.is Brosandi Bieber á handtökumynd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað varð um Gordon Gekko?

Þeir sem hafa áhuga á fjármálum verða að horfa á Wall Street, sérstaklega hina frægu ræðu hans um græðgi:

The point is, ladies and gentlemen, that greed, for lack of a better word, is good. Greed is right; greed works. Greed clarifies, cuts through, and captures the essence of the evolutionary spirit. Greed, in all of its forms, greed for life, for money, for love, knowledge has marked the upward surge of mankind.

Gordon Gekko er náttúrulega vondi kallinn í myndinni en hann, og það sem hann hefur að segja, er engu að síður heillandi. Bestu vondu kallarnir hafa sjarma. 

gordon_gekko_1226428.jpg

 


mbl.is Láti ekki hræðslu eða græðgi ráða för
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Christian Bale

Christian Bale

Ekkert nema vesenið

 

Ekki veit ég hvort Facebook fellur, eins og spáð er, en fyrir mig var Facebook eiginlega ekkert nema vesenið. Ég fór að öfunda fólk sem var ekki á Facebook. Svo fékk ég hugljómun: "Hey, ég get hætt!" Og það var það sem ég gerði.

 


mbl.is Facebook gæti fjarað út
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Framhaldsskóli fyrir alla?

Er eitthvað að því að sumir hætti í Framhaldsskóla? Og það er alveg rétt að sumum líður illa í skólanum. Hér er dæmi.

„Ég vil ekki fara í skólann!"

„Af hverju ekki, elskan mín?"

„Af því bara."

„Segðu mér hvað er að, elskan."

„Kennararnir hata mig og krakkarnir hata mig. Meira að segja húsvörðurinn hatar mig."

„Svona, svona. Þú verður að fara í skólann."

„Af hverju?"

„Af því að þú ert skólastjórinn." 

 

Skóli

 


mbl.is Hafa sætt sig við að vera taparar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslenskt graffítí

Blaðamaður spyr: Nú eru tölurnar yfir kostnað borgarinnar vegna hreinsunar á veggjakroti/list að minnka með hverju árinu,  til að mynda eyddi borgin 99 milljónum í hreinsunarstörf árið 2008 á meðan árið 2013 voru þær aðeins 9. Afhverju gæti það verið?

Viðmælandi svarar: „Hægt er að túlka það sem merki um ákveðna sátt. Kannski er viðhorfið að breytast, fólk er jafnvel með opnari hug þegar það kemur að veggjalist. Svo má ekki gleyma að borgarstjórnin í dag er stútfull af listamönnum sem hafa mögulega dýpri innsýn á hvað er list heldur en fyrirrennar þeirra. Mér finnst mikilvægt að fólk skilji að veggjalist er eitthvað sem er  handgert, einstakt og yfirleitt af eigin frumkvæði. Myndefni sem er ekki að selja þér eitthvað. Kannski vilja borgarbúar frekar sjá myndlist á leiðinni á milli staða  heldur en fjöldaframleiddar auglýsingar sem stuðla að neyslu."

Þetta svar er alls ekki í takti við það sem stendur á vef Reykjavíkurborgar:  

Reykjavíkurborg hefur unnið gegn skemmdarverkum af völdum veggjakrots í góðu samráði við íbúa, samtök þeirra og rekstraraðila. Markmiðið er að standa sameiginlega að hreinni borg, bættu viðhaldi og góðri umgengni. Mikilvægur þáttur í þessum áformum er hreinsun á kroti og/eða máluðum myndtáknum af völdum skemmdarvarga í borginni.

Það er grundvallarmunur á því hvort fengið er leyfi til að gera veggmynd eða ekki. Án leyfis er um skemmdarverk að ræða, jafnvel þótt að myndin geti verið góð. Hvernig fyndist veggjakrotara/listamanni að húseigandi kæmi og takkaði iPoddinn hans? Einhvern veginn grunar mig að veggjakrotaranum/listamanninum þætti það ekkert sniðugt.

Graffiti

 


mbl.is „Fólk með opnari hug þegar það kemur að veggjalist“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bob Marley, "Jah Live"

Eitt allra besta lag Bob Marleys að mínu mati--og það er af nógu að taka. Mér finnst línan "Fools say in their heart / Rasta, your God is dead" mögnuð.  


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband