Krafan um endalausan stuðning

Í greininni stendur: Jóna Flosadóttir "seg­ir stjórn­völd ekki hafa komið Fjöl­skyldu­hjálp­inni til aðstoðar við erfiðar aðstæður. Hún sé reiðubú­in að halda áfram ef stjórn­völd eru reiðubú­in að leggja sitt af mörk­um til stuðnings við bág­stadda hér á landi". Hún talar eins og það sé ekki rándýrt velferðarkerfi í landinu. Hvers vegna í ósköðunum á ríkið, sem er fjármagað af skattborgurum, að styðja hinn ört vaxandi hóp af félögum og samtökum í landinu? Stofnið endilega góðgerðasamtök, trúfélög, íþróttafélög, lífskoðunarfélög o.s.frv. en þau eiga að vera á ábyrgð þeirra sem reka þau og þeirra sem vilja styðja þau með frjálsum framlögum, ekki skattborgara. Skattborgarar allra landa sameinist og segið nei við þessu rugli!


mbl.is Fjölskylduhjálp Íslands að leggja upp laupana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Barbie

Ég sá Barbie. Hún var skemmtilega póstmódernísk fyrir hlé en eftir hlé breyttist myndin í gamaldags forréttindafemínista áróður. Ég sofnaði næstum því þegar lagið "Im Just Ken" var flutt.


mbl.is Gosling flytur „I'm Just Ken“ á Óskarnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 29. febrúar 2024

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband