"Hvað er sannleikur?"

„Hvað er sannleikur?" sagði nafni tónlistarmannsins í Milli Vanilli. Rob Pilatus er nú fallinn frá. Segja má að hann hafi dáið úr skömm. Stærsti smellur Milli Vanilli var "Girl You Know It's True". En það var víst bara lygi.

Stuttu eftir dauða Robs Pilasusar þótti það ekkert tiltökumál að söngvarar hreyfðu bara varirnar á hljómleikum. Maðurinn sem var á bakvið Milli Vanilli kokkaði einnig upp Boney M. Það var þýskur Svengali að nafni Frank Farian, sem er auðvitað tilbúið nafn. Hann var kokkur áður en hann fór út í tónlistarbransann og hefur kannski verið innspíraður af matargerðarlist þegar hann var að búa til hljómsveitir eins og Boney M og Milli Vanilli.

Hér er „Rasputin" með Boney M. Ein af mínum uppáhaldslínum í tónlistarsögunni er úr þessu lagi: „He could preach the Bible like a preacher." Fáránleg lína, en samt eitthvað svo frábær. 

 


mbl.is Segir heyrnarleysið „Guðs gjöf“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband