Tveggja ára áætlun

Jafnvel lesendur RT, sem er ríkisstyrktur áróðursmiðill rússneskra stjórnvalda, gera grín að þessari tveggja ára „efnahagsáætlun" Pútins.

Reyndar standa Rússar sig alltaf best þegar í harðbakkan slær, þannig að það er ekki gott að segja hvað gerist. Ef Pútin nær að beina óánægju með efnahagsástand, sem hann hefur sjálfur skapað, frá sjálfum sér og að vestrænum ríkjum, og þagga niður innlendar gagnrýnisraddir með slægð og hörku, sleppur hann sennilega með þetta.

Nú er að sjá hvort gömlu Sovét-trixin virka ennþá. Ég held að þau geri það.

Putin


mbl.is Pútín kokhraustur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband