Laun heimsins

Berum þetta mat Sigmundar Davíðs á stöðunni við mati almennings á honum. Fyrst allt er í svona góðu lagi, samkvæmt honum, hvers vegna er hann svona óvinsæll?

Einungis 10.9% af þeim sem tóku afstöðu telja að hann sé heiðarlegur, samkvæmt könnun MMR sem birt var 23. apríl 2014. Fjörtíu og sjö prósent af þeim sem tóku afstöðu töldu að Sigmundur Davíð búi ekki yfir neinum af þeim hæfileikum sem spurt var um. Spurt var um heiðarleika, að standa við eigin sannfæringu, að vera í tengslum við almenning, persónutöfra, ákveðni, styrk, að vinna vel undir álagi, og að vera fæddur leiðtogi. 

Kannski eru laun heimsins vanþakklæti. Hver veit?

Hér eru glefsur úr könnun MMR:

MMR kannaði álit almennings til persónueiginleika nokkurra stjórnmálaleiðtoga. Í könnuninni voru svarendur beðnir um að meta hvort nokkur persónueinkenni ættu við stjórnmálaleiðtogana eða ekki.

. . . 

Flestir töldu Katrínu Jakobsdóttur og Jón Gnarr vera heiðarleg. Þannig töldu 48,0% þeirra sem tóku afstöðu að Katrín Jakobsdóttir væri heiðarleg og 45,2% töldu Jón Gnarr vera heiðarlegan. Til samanburðar töldu 10,9% að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson væri heiðarlegur.

. . . 

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Árni Páll Árnason og Bjarni Benediktsson voru þeir stjórnmálamenn sem flestir sögðu að byggju ekki yfir neinum af þeim eiginleikum sem spurt var um [heiðarleiki, að standa við eigin sannfæringu, að vera í tengslum við almenning, persónutöfrar, ákveðni, styrkur, að vinna vel undir álagi, og að vera fæddur leiðtogi--innskot bloggara]. Þannig sögðu 47,0% þeirra sem tóku afstöðu að Sigmundur Davíð byggi ekki yfir neinum af þeim eiginleikum sem spurt var um, 39,9% sögðu Árna Pál ekki búa yfir neinum af þeim eiginleikum sem spurt var um og 38,9% sögðu Bjarna Benediktsson ekki búa yfir neinum af þeim eiginleikum sem spurt var um.

Þannig er nú það. 

Heimild: http://mmr.is/frettir/birtar-nieurstoeeur/397 

 

 

 


mbl.is Árangurinn umfram væntingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það var leitt, að ég var ekki spurður, því að ég hefði gefið Katrínu Jakobs og Jóni Gnarr falleinkunn. Katrín er jafnfölsk og 1200 króna seðill, hún er ákafur ESB-sinni en reyndi að breiða yfir það með blekkingum. Jón Gnarr er enginn leiðtogi, lætur aðra gera skítverkin sín og á ekkert erindi í pólítík.

Hins vegar er ég sammála matinu á vindhananum og vendikápunni Bjarna Ben, hann er afleitur og það er honum og svikaflokki hans að kenna, að umsóknin var ekki dregin formlega tilbaka. Á sama hátt er Árni Páll alveg jafn misheppnaður og Jóhanna og Steingrímur.

Í útvarpinu áðan voru talin upp helztu málin sem náðust á nýloknu þingi. Það er ljóst, að heilum vetri hefur verið eytt í ekki neitt. Vinstristjórnin á helför sinni gerði allt rangt, svo að ástandið gat ekki versnað og það hefur ekki gert það, en þótt efnahagslífið sé aðeins að taka við sér, þá er fjölmargt sem hefði mátt gera betur á þessum vetri, t.d. hafa bankarnir enn á ný fengið að vaða uppi með frekju og ósvífni. En þjóðin hefur alla vega séð hversu gagnslaus stjórnarandstaðan hefur verið.

Pétur D. (IP-tala skráð) 17.5.2014 kl. 13:04

2 Smámynd: Wilhelm Emilsson

Takk fyrir að gefa þitt álit. Kannski verður þú spurður í næstu könnun! :)

Wilhelm Emilsson, 17.5.2014 kl. 21:18

3 identicon

"Kannski verður þú spurður í næstu könnun!"

Ég vona það. Ég vona einnig að ég verði beðinn um að semja lagafrumvarp meðan þingmenn eru í hálfsársfríi, ég hef nefnilega margar fjári góðar hugmyndir, en engar af þeim góðar fyrir embættismenn og aðra amlóða.

Annars er furðulegt hvað þingmenn þurfa alltaf löng frí. Fyrst er páskafrí, síðan sumarfrí og svo jólafrí, öll mikið lengri en hinar vinnandi stéttir fá. Væri ekki betra að þeir væru á þingi frá 9 - 5 mánudaga til föstudaga og fengju svo bara 5 vikna sumarfrí eins og allir aðrir?

Pétur D. (IP-tala skráð) 18.5.2014 kl. 22:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband