Hversdagsleg færsla

Hér á stór-Vancouversvæðinu, ég bý í Coquitlam, er svo heitt að súkkulaðikexið sem ég keypti bráðnaði í eldhússkápnum. Ég varð að setja það inn í ísskáp. Kalt súkkulaðikex er reyndar ljúffengt. Sérstaklega ef maður fær sér mjólk með. Núna er ég að maula austurlenskt salad. Maðurinn lifir ekki á súkkulaðikexi einu saman.

Ég er að lesa Freud, Civilization and Its Discontent. Hverning þýðir maður það? Siðmenning og óánægja, kannski. Freud er svo dásamlega svartsýnn á mannlegt eðli. Svartsýni í öðru fólki virkar alltaf hressandi á mig.

Ég er líka að lesa Midnight's Children eftir Salman Rushdie. Ég er nefnilega í leshring. Við hittumst á morgun. Alltaf svolítið spennandi að vera í svona leshring. Þegar ég tek þátt í svona líður mér alltaf einhver veginn eins og ég sé í leynilegum öfgahópi. Allir að lesa sama efnið og plotta eitthvað. 

Svo held ég að ég klári að horfa í James Bond From Russia with Love í kvöld. Ég ólst upp við Roger Moore í hlutverki James Bond. Sean Connery er nú miklu betri, er það ekki? Svo hef ég líka gaman af sjöundaáratugsstílnum í þessum fyrstu myndum.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín M. Jóhannsdóttir

Blessaður Wilhelm. Ég þekki þetta vandamál með súkkulaðið. Maður verður að geyma það í ísskápnum. Ertu búin að vera lengi í Vancouver? Ég man ekki eftir að hafa rekist á þig!

Kristín M. Jóhannsdóttir, 5.8.2007 kl. 21:46

2 Smámynd: Wilhelm Emilsson

Sæl, Kristín. Ég kom í nám til Vancouver á síðustu öld (1992) og ílentist!

Wilhelm Emilsson, 6.8.2007 kl. 05:39

3 Smámynd: Kristín M. Jóhannsdóttir

Ég hef verið að rekast á hina og þessa Íslendinga hér upp á síðkastið. Við erum einhvern veginn öll í okkar hornum og vitum ekkert hvert af öðru. Kannski er það af því að hér er ekkert Íslendingafélag heldur bara Vestur-Íslendingafélag. Sjálf hef ég aldrei beinlínis haft þörf fyrir að hitta Íslendinga erlendis en stundum er gott að geta haldið tungumálinu svolítið við.

Kristín M. Jóhannsdóttir, 6.8.2007 kl. 05:55

4 Smámynd: Wilhelm Emilsson

Sæl aftur, Kristín.

Já, ég kannast við þetta. Þegar ég var hér í námi bjó ég á UBC háskólasvæðinu og þar var nokkuð stór Íslendinganýlenda. Svo sneru svo til allir heim eins og við var að búast.

Ég hef samband við tvo Íslendinga á svæðinu, en við hittust ekki nógu oft. Eins og þú bendir réttilega á þá er hver í sínu horni og í hverju horni er í mörg horn að líta. Það væri kannski ráð að hóa saman þeim Íslendingum sem hér eru við tækifæri!

Wilhelm Emilsson, 7.8.2007 kl. 02:15

5 Smámynd: Kristín M. Jóhannsdóttir

Ég hef aðeins verið að velta því fyrir mér að halda partý eða eitthvað í september þegar skólinn er byrjaðu. Datt reyndar líka í hug að það gæti verið ágætt að stofna hópinn 'Íslendingar í Vancouver' á Facebook. Þá væri svo auðvelt að halda utan um þetta hver er á svæðinu og hvað er um að vera hvar á hverjum tíma.

Kristín M. Jóhannsdóttir, 7.8.2007 kl. 04:03

6 Smámynd: Wilhelm Emilsson

Kristín, mér líst mjög vel á þessar hugmyndir um partí og Facebooksíðu Íslendinga í Vancouver.

Wilhelm Emilsson, 7.8.2007 kl. 17:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband