2+2=4

Össur getur reynt að sannfæra sjálfan sig um að tveir plús tveir séu fimm, en auðvitað hefur Kristrún fært Samfylkinguna til hægri, þ.e.a.s. frá rammvillta vinstrinu til miðjunnar. Tími Össurar Skarphéðinssonar kom og fór. Þetta er tími Kristrúnar Frostadóttur.

Það verður spennandi að fylgjast með því hvort fylgi flokksins eykst eða minnkar í næstu skoðanankönnunum. Min grunar að það muni aukast. Hingað til hefur umræðu um flóttafólk verið haldið í gíslingu af félagasamtökum, fjölmiðlum, vinahópum og einstaklingum sem stimpla alla rasista sem vilja ræða þetta mál, hvort sem þeir eru í raun og veru rasistar eða bara venjulegir borgarar sem vilja ræða málið af skynsemi og raunsæi. En nú er eins og stífla hafi brostið eftir samtal Kristrúnar og Þórarins Hjartarsonar í Einni pælingu. Þetta er til góðs. Örþjóðina Ísland verður að skilja að þótt hún sé öll af vilja gerð, getur hún ekki bjargað heiminum. En hún getur gert sér og öðrum gagn. Til að gera gagn verður að hugsa málið til enda.


mbl.is Össur segir Kristrúnu ekki boða stefnubreytingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þvílíkt yfirklór hjá Össuri. Hann fer þarna sömu leið og Ingibjörg Sólrún, Samfó hefur ekki breytt um áherslur. pffff

Síðast þegar ég vissi var Kristrún formaðurinn, Nema hún sé bara þarna til að fá fylgið upp ?

Kannski er Samfó bara sama hræran í nýrri pönnu.

Birgir Guðjónsson (IP-tala skráð) 19.2.2024 kl. 09:24

2 Smámynd: Ingólfur Sigurðsson

Mér finnst allt í lagi og sæmilega sannfærandi þegar nýr formaður, Kristrún boðar breytingar, en þegar fyrrverandi formenn flokksins fara að bulla um að engin stefnubreyting sé þarna á ferðinni, og þau séu sammála, þá finnst mér það ekki sannfærandi. Eins og einhver skrifaði, ljóst er hver stefna Samfylkingarinnar var... og kannski er...

Ingólfur Sigurðsson, 19.2.2024 kl. 14:24

3 Smámynd: Wilhelm Emilsson

Takk fyrir athugasemdirnar, Birgir og Ingólfur.

Wilhelm Emilsson, 19.2.2024 kl. 18:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband