Þýðing óskast

Getur einhver vinsamlegast þýtt þessa grein á íslensku?


mbl.is Frjálsa gert að fella á brott skilmálabreytingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Bragi Skaftason

Ekkert mál, þetta þýðir í raun og veru að Frjálsi setti sem skilyrði fyrir frystingu lána eða minnkunar afborgana sem þeir kalla festingu lána, að skrifað yrði undir skilmálabreytingu. Þessi skilmálabreyting gerði Frjálsa, eða kröfuhafa, kleift að ákvarða sjálfum gengið sem afborganir yrðu greiddar á. Í fyrri lánasamningum var tekið fram að miða ætti við Seðlabankagengi. Með skilmálabreytingunni var sem sagt Frjálsa gefinn kostur á að taka hvaða gengi sem er á erlendu lánunum sínum. Sem sagt ójafn leikur og verið að nýta sér bágindi fólks til að koma fram skilmálabreytingu sem gengur gegn hagsmunum lántakanda.

Vona að þetta hafi verið nógu skýrt.

Bragi Skaftason, 19.12.2008 kl. 10:59

2 identicon

Frjálsi fjárfestingabankinn hefur verið að lána fólki íbúðarlán í erlendri mynt um áraraðir.

Eftir hrunið buðu þeir uppá frystingu lána (að tilmælum ríkisstjórnar) en til þess að geta nýtt sér þann möguleika þurfti fólk að skrifa undir skilmálabreytingar. Ein breytingin var sú að í stað þess að miðið sé við gengi Seðlabanka Íslands þegar afborgun er reiknuð út átti að fara að miða við gengi Frjálsa, þ.e. þeim var frjálst að ákveða sitt eigið gengi óháð gengi SÍ.

Þetta sögðu þeir að væri til að lánin væru seljanlegri þ.e. ef þeir hugsa sér að selja lán Íslendinga til erlendra aðila sem gætu þá án nokkurs fyrirvara eða aðlögunarfrests ákveðið að gengi krónu gagnvart evru væri t.d. 500 kr.

Þannig að þegar fólk var neytt til að skrifa undir þessa skilmálabreytingar til að forða sér frá gjaldþroti var það um leið að gefa bankanum sjálfsákvörðunarleyfi á að ákvarða hvað þú skuldar honum mikið í íslenskum krónum.

Karma (IP-tala skráð) 19.12.2008 kl. 11:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband