Krafan um endalausan stuðning
29.2.2024 | 07:21
Í greininni stendur: Jóna Flosadóttir "segir stjórnvöld ekki hafa komið Fjölskylduhjálpinni til aðstoðar við erfiðar aðstæður. Hún sé reiðubúin að halda áfram ef stjórnvöld eru reiðubúin að leggja sitt af mörkum til stuðnings við bágstadda hér á landi". Hún talar eins og það sé ekki rándýrt velferðarkerfi í landinu. Hvers vegna í ósköðunum á ríkið, sem er fjármagað af skattborgurum, að styðja hinn ört vaxandi hóp af félögum og samtökum í landinu? Stofnið endilega góðgerðasamtök, trúfélög, íþróttafélög, lífskoðunarfélög o.s.frv. en þau eiga að vera á ábyrgð þeirra sem reka þau og þeirra sem vilja styðja þau með frjálsum framlögum, ekki skattborgara. Skattborgarar allra landa sameinist og segið nei við þessu rugli!
Fjölskylduhjálp Íslands að leggja upp laupana | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Barbie
29.2.2024 | 05:07
Ég sá Barbie. Hún var skemmtilega póstmódernísk fyrir hlé en eftir hlé breyttist myndin í gamaldags forréttindafemínista áróður. Ég sofnaði næstum því þegar lagið "Im Just Ken" var flutt.
Gosling flytur I'm Just Ken á Óskarnum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 05:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)