Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2014

Krabbaborgarar :0)

Góð hugmynd! Þeir sem þekkja glaðbeitta svampinnn SpongeBoB Squarepants vita að hann vinnur við að steikja krabbaborgara Smile

SpongeBob Squarepants

 


mbl.is Veiða krabba og selja á matarvagni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aldrei fór ég austur

Ég hef aldrei orðið svo frægur að koma til Austurlands. Það næsta sem ég hef komist því er að sjá Andra á flandri ferðast um svæðið. Kannski á ég það eftir.

Sumir fara aldrei austur. Sumir fara aldrei suður.

Nú er ég kominn á planið

og ég pæli ekki neitt.

Ég pækla mínar tunnur.

Fyrir það ég fæ víst greitt.

Mér finnst alltaf flott hvernig Bubbi syngur þetta vers.

 

 

 


mbl.is Glampandi sól fyrir austan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

The Byrds, "Hickory Wind"

Þegar Byrds tóku upp þetta lag voru bara tveir af upprunalegu meðlimum hljómsveitarinnar eftir, Roger McGuinn og Chris Hillmann. En Gram Parsons var nýi meðlimurinn og með hann innanborðs urðu Byrdsaranir aftur frumkvöðlar, því þeim er yfirleitt eignað það að hafa búið til kántrí rokkið. Þetta finnst mér alltaf fallegast lag Gram Parsons. Áhrif Parsons má til dæmis finna í lögum Rolling Stones, "Wild Horses" og "Dead Flowers". Þeir Keith Richards voru kumpánar. Roger McGuinn varð að orði: „The Stones ripped Gram off for all he was worth, man."

 

 

 


Lag og mynd

Hér er upphafið á hinni frábæru mynd The Big Lebowski. Lagið er „The Man in Me" með Bob Dylan, sem er maður sér aldrei á Best Of/Greatest Hits plötum með honum, en mér finnst þetta með hans allra bestu lögum. Nick Cave sagði að hann hefði óskað þess að hann hefði samið þetta lag. UPPFÆRT: Þetta er rangt hjá mér. Það er lagið „I Threw It All Away" sem Nick Cave vildi kveðið hafa. Sem meikar meiri sens, því að Nick Cave hefur margstolið orgelspilinu í því lagi :)

The Man in Me 

The man in me will do nearly any task,

And as for compensation, there's little he would ask.
Take a woman like you 
To get through to the man in me.

Storm clouds are raging all around my door.

I think to myself I might not take it anymore.
Take a woman like your kind 
To find the man in me.

But, oh, what a wonderful feeling
Just to know that you are near,

Sets my heart a-reeling
From my toes up to my ears.

The man in me will hide sometimes to keep from bein´ seen
But that's just because he doesn't want to turn into some machine
Take a woman like you 

To get through to the man in me. 

 

 

 


Veiki læknirinn

Ef drykkjuskapur er sjúkdómur, eins og menn þreytast ekki á að halda fram, er þá fulli læknirinn líka fórnarlamb?

Drukkinn læknir

 


mbl.is Læknirinn var drukkinn á vakt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fóstbræðragrín


Strangur skóli

Samkvæmt guðspjöllunum breytti Jesús vatni í vín, reisti menn frá dauðum og gerði ýmislegt fleira sem margir myndu kalla galdra, og hann var með sítt hár og skegg, eða alla vega er hann þannig á Bíblíumyndum. Samkvæmt þessu hefði hann ekki komist inn þennan stranga háskóla í Flórída. Kannski er skólinn rekinn af faríseum.

Jesús 

 


mbl.is Strangasti háskóli í heimi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í þoku

Ég fann þetta ljóð á Ljóð.is. Höfundurinn er „Svipur" og ljóðbókin, sem komu út 1965, heitir Svipur að norðan:

Margt býr í þokunni

um mig hrollur fer.

Held þó áfram föru minni

því engill lýsir mér.

Mér finnst þetta flott, en ég játa að ég veit ekkert meira um höfundinn. 

Þoka

 

 



mbl.is Þokan heillar eins og norðurljósin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Regn

Ísland er ekki Benídorm. Það er hluti að sjarma landsins. Að vona að sumarið verði hlýtt og þurrt er bara uppskrift að svekkelsi.

Reykjavík

 

 

 

 

 

 

 


mbl.is Það er vott en mun það versna?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Athygli

Leikarar hafa mikla athyglisþörf, eðli málsins samkvæmt. Þegar þeir komast í fréttirnar fyrir undarlega hegðun getur maður aldrei verið viss að hve miklu leyti þeir eru að leika. Stundum vita þeir það sennilega ekki sjálfir. 

En Mad Max verður alltaf Mad Max.

 


mbl.is Vorkennir Shia LaBeouf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband