Bloggfærslur mánaðarins, mars 2023

No comment

Stundum er best að segja ekki neitt.


mbl.is Neitaði að tjá sig um Trump
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bam

Blessaður karlinn. Hann var hluti af forheimskandi fjöldamenningu sem upphóf lífshættulegan fávitaskap og uppskar frægð og frama fyrir það. Núna er partíið búið en hann heldur áfram að djamma og líf hans verður sorglegra og sorglegra með hverju árinu sem líður. Þess má geta að hann er með orðin Stórfréttir í Reykjavík tattóveruð á sig.


mbl.is Bam Margera handtekinn aftur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Afrek

Þetta er náttúrulega mikið afrek, að hanga þurr í heilar fimm vikur.


mbl.is Edrú í fimm vikur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kyn og kyngervi

Ef fólk trúir því að manneskjur geti breytt um líffræðilegt kyn, þá er morðinginn, Audrey Hale, karlkyns. En kynjafræðin gerir greinarmun á líffræðilegu kyni (sex) og félagslegu kyni, sem kallast á íslensku kyngervi (gender). Semsagt, kyn er notað um það sem á ensku kallast sex og kyngervi er notað um gender. Samkvæmt kynjafræðinni er morðinginn því kvenkyns, en kyngervi þessa einstaklings er karl, því viðkomandi notaði karlkyns fornöfn.

Þetta er allavega minn skilningur. Ef einhver veit betur leiðréttið mig endilega.


mbl.is Myndband sýnir lögregluþjóna skjóta árásarmanninn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hundalíf

Og til að sleppa við að þurfa að glíma við öll þessi hundleiðinlegu vandamál er einfaldast að eiga ekki hund. 


mbl.is Af hverju að leyfa hundum að þefa?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bibi og kerfið

Það er einkenni sumra leiðtoga að reyna að breyta kerfinu ef útkoman hentar þeim ekki. En þeir eru yfirleitt hæstánægðir með kerfið ef útkoman er þeim í vil. "Bara ef það hentar mér," sungu Stuðmenn. 


mbl.is Næstu skref Netanyahus óljós
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sagnir

Í greininni stendur: "Hann var myrt­ur af lög­reglu á vett­vangi . . ." Morð er glæpur og þess vegna á sögnin "að myrða" ekki við í þessu tilviki. 

UPPFÆRT: Núna er búið að laga þetta. Takk fyrir það.


mbl.is Skildi eftir stefnuyfirlýsingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

List og ritskoðun

Mörgum finnst þetta voða fyndið og fáránlegt, en þessi ýktu viðbrögð við nakinni styttu er bara hægri útgáfa af ritskoðunaráráttu. Það er ekki langt síðan að prógressívir púrítanar á Íslandi trompuðust yfir óperu og heimtuðu að henni yrði breytt.


mbl.is Nemendum og kennurum boðið að sjá nakinn Davíð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Traust og trúverðugleiki

Ingibjörg Dögg, annar ritstjóra Heimildarinnar, segir:

„Það er þetta menn­ing­ar­stríð. Þeir sem eru and­stæðir MeT­oo, þeir sem hafa hags­muna að gæta eða hafa orðið und­ir með ein­hverj­um hætti í þess­ari umræðu, vegna þess að þeir hafa gert eitt­hvað sem hef­ur verið af­hjúpað og op­in­berað – það hlakk­ar svo­lítið í þeim núna vegna þess að hætt­an er sú að þetta verði notað til að draga úr trú­verðug­leika brotaþola. Mér finnst mik­il­vægt að það ger­ist ekki, vegna þess að við ger­um mikl­ar kröf­ur í þess­um flóknu og erfiðu mál­um. Það er eng­in ástæða til að ef­ast um það sem hef­ur komið fram. . . ."

„Það sem gerðist hérna er að maður sem á harma að hefna gagn­vart Eddu Falak og Heim­ild­inni, og hef­ur ráðið lög­mann til að beita sér gegn Heim­ild­inni, set­ur fram alls kon­ar ásak­an­ir á hend­ur Eddu Falak og kall­ar hana per­sónu­leik­araskaða. Þetta er þessi and­stæða við MeT­oo sem er að birt­ast.“

Hér er ritstjórinn að blanda saman tveimur málum. Málið snýst um trúverðugleika Eddu Falak. Hún hefur viðurkennt að hún laug um starfsferil sinn í Kaupmannahöfn. Það skiptir ekki máli hver afhjúpaði þær lygar. Hvort það er Heimildin, Fréttablaðið, eða Frosti. Sannleikurinn er óháður því hver segir hann. 


mbl.is Mikilvægt að fólk geri hreint fyrir sínum dyrum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kalda stríðið

Xi og Pútín vilja báðir draga úr áhrifum frjálslyndra lýðræðisríkja, því þau eru tilvistarleg ógn við þá stjórnarhætti sem þeim hugnast. Kalda stríðinu lauk aldrei. Það var bara gert stutt hlé. 


mbl.is Segir friðaráætlun Kína geta bundið enda á stríðið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband