Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2015
Gagnrýni eða andlegt ofbeldi?
30.11.2015 | 20:09
Nú væri gaman að vita hvort Vigdís Hauksdóttir telur þessar aðfinnslur stjórnarandstöðunnar meira "andlegt ofbeldi".
Mótmæla framgöngu Vigdísar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Grjót úr steinhúsi
30.11.2015 | 03:00
Vigdís Hauksdóttir er dugleg að gagnrýna aðra, en þegar hún er gagnrýnd þá kallar hún það "andlegt ofbeldi". Eins og hún myndi segja sjálf, þá "kastar hún grjóti úr steinhúsi".
Hér er smá grein um gagnrýni Vigdíar:
http://stundin.is/frett/namsefnid-er-vigdisi-ekki-ad-skapi/
En íslensk stjórnmál væru leiðinlegri án hennar.
Líkir gagnrýni við andlegt ofbeldi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Meirihlutinn trúir "brjálæðislegum fullyrðingum"
29.11.2015 | 01:48
Í greininni stendur:
Þar sem vitað er að ávallt er til verulegur minnihluti sem er sammála hvaða brjálæðislegu fullyrðingu sem sett er fram Elvis er enn á lífi, geislasverð eru til hvað ættum við þá að leggja mikið upp úr könnunum sem sagt er að sýni vísi að breskum jihadisma?
Mikill meirihluti mannkyns trúir "brjálæðislegum fullyrðingum" eins og til dæmis því að Guð hafi talað við Múhammeð, að hrein mey geti eignast barn og endurholdgun eigi sér stað. Hæfileiki meirihluta mannkyns til að trúa er ansi mikill.
Er hann Elvis kannski enn á lífi? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Bannað
24.11.2015 | 02:20
Skildi vera til undirskriftalisti gegn fáránlegum undirskriftalistum? Kannski kominn tími á það.
Hvað vilja þeir sem standa fyrir þessu lista? Ef banna á að ákveðinn hópur sé sýndur í "neikvæðu ljósi" þá er náttúrulega langöruggast að banna gamanmyndir--og allt glens og grín, svona til að það sé alveg víst að enginn móðgist.
Þeir sem standa fyrir listanum vilja frelsi til að boða að gamanmynd sé sniðgengin en vilja ekki að þeir sem búa til myndina hafi tjáninga- og skoðanafrelsi. Týpískt! :)
Fólk hvatt til að sniðganga Zoolander 2 | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 04:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Undarleg niðurstaða
21.11.2015 | 22:33
Norski blaðamaðurinn og rithöfundurinn skrifar: "Þeir sem óttast íslam og Ríki íslams eru fullkomnir fjendur hvorir annarra og spegilmyndir . . ." Þetta er undarleg niðurstaða. Óttast hún ekki Ríki Íslams? Ef hún óttast samtökin er hún þá spegilmynd samtakanna?
"Á gráa svæðinu er pláss fyrir alla liti," skrifar hún. Þetta er ruglingsleg myndhverfing. Grátt svæði er grátt. Þar eru engir litir.
Ef það er pláss fyrir alla á "gráa svæðinu" þýðir það að þar er pláss fyrir hinn svarta og hvíta fána Ríki Íslams. Viljum við virkilega lifa á þannig svæði?
Baráttan gegn gráa svæðinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Himinn og jörð
19.11.2015 | 20:06
Núna er Ríki Íslams búið að fá bæði Pútín og Kína á móti sér. Er einhver eftir? En ófriður er jú það sem samtökin vilja, því hugmyndin er að skapa alheimsátök milli Múslima og heiðingjanna. En hvorki Pútin né kínversk stjórnvöld eru þekkt fyrir linkind, svo það fer kannski að styttast í himnavistina hjá sumum sem tilheyra Ríki Íslams.
Kínverjar æfir út í Ríki íslams | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um nöfn
18.11.2015 | 19:19
Hví ekki að kalla hlutina réttum nöfnum? Laun fær maður fyrir vinnu. Ef Píratar vilja að allir fái greitt fyrir að vera til væri það borgarastyrkur en ekki borgaralaun.
Tillaga um borgaralaun aftur lögð fram | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Fimm prósent?
16.11.2015 | 19:58
Er Árni Páll að reyna að koma Samfylkingunni niður í 5% flokk? Ef hann heldur áfram að tala svona tekst það sennilega.
Hryðjuverk ekki leyst með vopnaburði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Málfrelsi
16.11.2015 | 18:33
Ég er ekki aðdáandi Sigmundar Davíðs en hér er ég sammála honum. Það er kaldhæðnislegt að kapteinn Pírata, flokks sem standur fyrir málfrelsi, skuli reyna að þagga niður umræðu. En hún hefur náttúrulega frelsi til að tjá sig :)
Ráðherra tjái sig varlega | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Franska byltingin og Kóraninn
16.11.2015 | 01:19
Franska byltingin var nú ansi blóðug. Svo má spyrja, stenst eftirfarandi fullyrðing skoðun?
Mannslíf er dýrmætt í íslam, hvert einasta líf er jafnt dýrmætt.
Í Kóraninum stendur:
[Remember] when your Lord inspired to the angels, "I am with you, so strengthen those who have believed. I will cast terror into the hearts of those who disbelieved, so strike [them] upon the necks and strike from them every fingertip." (8:12)
Og ekki segja mér að þetta sé röng þýðing eða líkingamál.
Heimild: http://quran.com/8/12
Félag múslima á Íslandi fordæmir árásirnar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (22)