Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2009

Tónlist og Mammon

Hér er hressileg grein um tónlist og Mammon úr Guardian. Tekið skal fram að efnið er ekki fyrir viðkvæma.

http://www.guardian.co.uk/music/musicblog/2007/jun/06/thebestselloutofalltime


Gott mál

Ham lengi lifi! Þar sem þeir sömdu lag um Hafnir, "Party Town (The Groove of Hafnir City)" / "Partýbær," legg ég til að þeir taki upp lag Leoncíar um Sandgerði, "Satan City." Mér skilst að Leoncie og Sigurjón hafi átt í einhverjum illdeilum en tíminn læknar öll sár. Er ekki kominn tími til að gera konsept albúm um Suðurnesin? Platan myndi semja sig svo til sjálf.

1. Suðurnesjamenn

2. Suðurnesjakonur

3. Rokk í Keflavík

4. Satan City

5. The Green, Green Grass of Sandgerði.

6. Hafnir City, Party Town

7. Njarðvíkur-Njörður

8. Reykjanesbær (We Are the Future, Your Future)

9. Ást í Bláa lóninu

10. Ég sagði þér að kalla mig ekki menningarsnauðan Grindvíking.

11. By the Time I Get to Garður

12. Hæ, bæ: Leifsstöð


mbl.is Mikill hugur í Ham
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki alveg rétt

Í fréttinni stendur: "Dylan hefur hingað til ekki verið þekktur fyrir að taka þátt í auglýsingum af neinu tagi . . .". Þetta er nú ekki alveg rétt. Dylan leyfði Bank of Montreal að nota lagið "The Times They Are A-Changin'" í auglýsingu. Hann kom einnig fram í Victoria's Secret undirfataauglýsingu og Cadillac auglýsingu. Þetta olli mörgum aðdáendum hans gremju, en Dylan hefur alltaf farið sínar eigin leiðir. Hann er eins og hann er og það er hluti af hans sjarma. Mér finnst samt rétt að félagi Dylans Neil Young eigi síðasta orðið:

Ain't singing for Pepsi,

Ain't singing for Coke.

I don't sing for nobody

Makes me look like a joke.

"This Note's for You"    


mbl.is Dylan í Pepsi-auglýsingu?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Framhaldssagan: Sjöundi kapítuli

"Það er svo margt að minnast á," sagði Sveinki og glotti.

"En flest af því er leiðinlegt, svo við skulum bara gleyma," sagði Hökki.

"Já, við skulum bara gleyma," svaraði Sveinki. "Djöfull er annars gott að hitta þig aftur."

"Sömuleiðis."

"Af hverju er svona langt frá því við hittumst?"

"Ertu með Alzheimer? Manstu ekki hvað gerðist?"

Sveinki strauk hendinni í gegnum burstaklippt hárið. "Slappaðu af, Hökki. Ég hef engu gleymt. Heyrðu, spilaðu 'Fire Woman' og  'Love Removal Machine' fyrir mig."

"CULT?! Hahaha. Þú varst alltaf með ömurlegan tónlistarsmekk. Cult? Kommonn. Ian Astbury gat aldrei gert upp við sig hvort hann væri Jim Morrison eða indíáni. Maðurinn er fífl."

"Fólk er fífl. Spilaðu lögin eða ég piparúða þig, auminginn þinn."

"Hahahaha. Gamli góði Sveinki. Bakk in blakk. Hahahaha."


Stál og sleggja

Nýja Ísland Sturlungaöld

stál og sleggja

hnífur og skeið

undrið

hrunið

nýja ísland

sturlungar


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband