Fundur?

Mig grunar að það verði ekkert úr þessum fundi. Bæði Pútín og Selenskí hafa sett skilyrði fyrir honum sem ólíklegt er að verði uppfyllt að svo stöddu. Fólk virðist alltaf jafn hissa á því að stríð brjótist út, en stríð er mannskepnunni jafn eðlislægt og friður. En ef Pútín og Selenskí þurftu sjálfir að berjast á vígvellinum eru allar líkur á því að þessu stríði myndi ljúka frekar fljótt.


mbl.is Selenskí: Evrópa verður að taka þátt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Röng þýðing

Í greininni stendur:

BBC grein­ir frá. „Það er okk­ar fag­lega mat að Ham­as stafi ekki leng­ur stefnu­mark­andi ógn af Ísra­el,“ segja emb­ætt­is­menn­irn­ir.

Hér hefur blaðamaður Morgunblaðsins ruglað saman Hamas og Ísrael.


mbl.is Leita til Trumps um aðstoð við að binda enda á stríðið á Gasa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Glæpir og Trumpismi

 

Það er mótsögn í umfjöllun afbrotafræðingsins. Fyrst segir hún:

“Það er klár­lega stemn­ing fyr­ir þess­ari umræðu [sem hún kallar Trumpisma] á sam­fé­lags­miðlum en hvort hún rími við raun­veru­leik­ann eða vinnu­brögð lög­regl­unn­ar, ég bara þekki það ekki.“

En svo segir í greininni:

 

Mar­grét seg­ist ekki vita til þess að lög­regl­an hafi breytt sín­um vinnu­brögðum eða bregðist síður við ákveðnum brot­um sem eru ekki tal­in al­var­leg.

“Ég hef ekki séð neitt sem bend­ir til þess,” seg­ir Mar­grét um það.

Fyrst segist hún ekki vita hvort að áhyggjur um að ekki sé tekið nógu hart á glæpum eigi við rök að styðjast. En svo segir hún að ekkert bendi til þess að svo sé.

Svo má bæta við að Trump hefur engan einkarétt á því að hafa áhyggjur af glæpum. Að kalla slíkar áhyggjur Trumpisma er villandi og ýtir undir óþarfa pólitíska skautun.


mbl.is Traust til lögreglu rýrnar: „Þetta er Trumpismi“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Glæpir og staðreyndir

Fjölnir Sæmundsson, formaður Landssambands lögreglumanna, segir í útvarpsviðtali sem fylgir með frétt á Vísi þann 22. júlí: “Það er nú alltaf verið að halda því fram í fjölmiðlum að glæpir hafi aukist á Íslandi. En það er auðvitað ekki rétt. Þeir hafa ekkert aukist.” Hvers vegna segir hann þetta ef það er borðleggjandi að þeir hafa aukist?


mbl.is Fjöldi stórfelldra líkamsárása tvöfaldast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samstuðið

Svona er hann, rauði raunveruleikinn. 


mbl.is Sósíalistum bolað úr Bolholti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fólk í fréttum

Fræga fólkið--og fólkið sem vill verða frægt--er endalaust að "opna sig" um hluti sem venjulegt fólk hefur takmarkaðan áhuga á. Samkvæmt ráðandi hugmyndafræði er hinn moldríki Drake fórnarlamb og spilafíkn hans er "sjúkdómur" sem er samfélaginu að kenna. Bú hú. 


mbl.is Drake opnar sig um spilafíkn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mergur málsins

Lukasz Pawlowski, sem stýr­ir stefnu­mót­un­ar­deild pólska ut­an­rík­is­ráðuneyt­is­ins, segir:

Það sem ógn­ar vald­höf­un­um [í Rússlandi] er heim­ur þar sem land eins og Úkraína – sem þeir kalla til­bún­ing – gæti stefnt að lýðræðis­leg­um hug­sjón­um og endað bet­ur statt en Rúss­land.

Það er það sem Kreml ótt­ast: að venju­leg­ir Rúss­ar gætu séð það og áttað sig á að betra líf án keis­ara er mögu­legt.

Þetta er mergur málsins og lúmskt hjá honum að kalla Pútín "keisara." Á keisaratímanum var Úkraína oft kölluð Litla-Rússland og það er skoðun Pútíns þegar kemur að Úkraínu. Það mætti kannski segja að hann líti á Úkraínu eins og flestir Íslendingar líta á Vestmannaeyjar.


mbl.is Stærsta landið vill meira land
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Líf og lífskjör

Hressileg og mannleg umfjöllun. Kannski "Mannleg, of mannleg," eins og Nietzsche gamli sagði. Í greininni stendur:

Óeirðir geisa í Los Ang­eles og það blas­ir ekki endi­lega við með hvorri fylk­ing­unni á að halda.

Ann­ars veg­ar höf­um við lög­regl­una, þjóðvarðliðið og Trump, og þau sjón­ar­mið að það sé öll­um sam­fé­lög­um mik­il­vægt að farið sé eft­ir lög­um og leik­regl­um, og að það sé eðli­legt og æski­legt að mæta því af fullri hörku þegar mót­mæli snú­ast upp í of­beldi og eigna­spjöll.

Ég er svolítið hissa á því að greinarhöfundur, sem er frjálshyggjumaður ef mér skjátlast ekki, geri ekki meira úr eignarréttinum. Eru eignaspjöll í góðu lagi? Er ekki eignarrétturinn ein af undirstöðum frelsis og velmegunar? Þar að auki, ef það er valkvætt í frjálslyndu lýðræðissamfélagi hvort fólk fari eftir lögunum er það samfélagið komið í miklar ógöngur.

 


mbl.is Fréttaskýring: Að fá að bæta lífskjör sín í friði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Friðflytjandinn mikli

Pútín er auðvitað mjög diplómatískur og mikill friðflytandi eins og sagan hefur sýnt.


mbl.is Pútín vill leysa átökin með „diplómatískum leiðum“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Um styrki

Í greininni er vitnað í Gunnar Smára, sem segir: "Á sam­eig­in­leg­um fundi fram­kvæmda- og mál­efna­stjórna Sósí­al­ista­flokks­ins 1. ág­úst 2021 var samþykkt til­boð til kjós­enda sem kallað var Burt með elít­u­stjórn­mál þar sem kom fram að styrk­ir til Sósí­al­ista­flokks­ins yrðu ekki notaðir til að byggja upp flokk­inn held­ur Sam­stöðina og hreyf­ing­ar hinn­ar fá­tæku."

Ég skil ekki hvernig flokknum leyfist að styrkir sem hann fær frá Reykjavíkurborg og ríkinu, það er að segja, skattborgurum, séu notaðir til "að efla hags­muna­bar­áttu fá­tækra hópa og byggja upp fjöl­miðlun." Gilda engar reglur um notkun styrkja til stjórnmálaflokka?


mbl.is Gunnar Smári svarar „ruglukollum“ fullum hálsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband