Réttlæti
31.5.2023 | 00:04
Ef við viljum leika þennan leik þá má benda á að allir í stjórn Norska olíusjóðsins eru hvítir. Ef sjóðurinn vill vera "réttu megin sögunnar" þá þurfa að minnsta kosti að vera tveir sem eru ekki hvítir í stjórninni. Og hvað með kyngervi? Hvað með aldursfordóma? Hvað með hæfisfordóma? Hvað með stéttafordóma? Og hvers vegna þarf bara tvo einstaklinga sem eru ekki hvítir gagnkynhneigðir karlmenn í stjórnina? Ef Norski olíusjóðurinn vill halda áfram á þessari braut þurfa stjórnendur hans greinlega að gera betur
Hafna stjórnum eingöngu skipuðum körlum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Vextir og vaxtabætur
30.5.2023 | 21:56
Í greininni stendur: "Að lokum sagði Kristrún að á næstu dögum myndi Samfylkingin leggja fram tillögur um vaxtabætur . . ." Vaxtabætur eru mjög sérkennilegt fyrirbæri. Hvers vegna eru skattborgarar neyddir til að niðurgreiða skuldir sem fólk kemur sér í?
Enginn vill bera ábyrgð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Þekking og þekkingarleysi
30.5.2023 | 16:30
Þekktu sjálfan þig er sennilega þekktasta setning forn-grískrar menningar. En við þurfum líka að þekkja þá sem við umgöngumst. Hér kemur hin skemmtilega og séríslenska setning Ég þekki þig og þitt fólk! sterk inn. Auk þess að þekkja sjálfan sig og aðra þarf maður að vita hvar maður er, hvaðan maður er að koma og hvert maður er að fara. Mörg okkar, kannski flestgáfnaljós, meðaljónar og tossarlæra þetta aldrei og vaða í villu og svíma allt sitt líf. Bömmer!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Líf og lífsgæði
29.5.2023 | 02:12
Á Íslandi búa fáir og það er nóg pláss. Hugmyndin um þéttingu byggðar er þar af leiðandi ónauðsynleg. Ef planið er að neyða fólk til að hjóla eða taka strætó virkar hún ekki nema fyrir mjög lítinn hóp. Að þjappa fólki saman eykur líkurnar á því að það verði pirrað, þunglynt og árásargjarnt. Byggjum rúmgóðar borgir, bæi og þorp með nóg af skemmtigörðum og útivistarsvæðum. Þá verða allir, nema þeir sem kvarta yfir öllu, ánægðir.
Umferðarþungi bíði íbúa í Skerjafirði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 06:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hjólið brotnar við brunninn
28.5.2023 | 23:43
"Bölvaðir fáráðar eru þetta!" sagði amma mín stundum þegar hegðun fólks gekk fram af henni. Donatella Versace er augljóst dæmi um þau gömlu sannindi að hégóminn er harður húsbóndi. En í stað þess að samfélagið sendi henni þau skilaboð að hún ætti að leita sér hjálpar dansar fólk með í þessum afkáralega trúðadansi. Og líkur hér predikuninni
Ekki sjálfsagt að geta andað í kjólunum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 29.5.2023 kl. 00:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Norræn fangelsi
28.5.2023 | 01:46
Þegar ég var við nám á Englandi var mér sögð saga um enskar fótboltabullur sem voru handteknar eftir óeirðir á fótboltaleikvangi í Svíþjóð. Kapparnir voru fangelsaðir. Þegar átti að láta þá lausu vildu þeir ekki yfirgefa fangelsið. Sænska fangelsið var miklu betra en ensk heimili þeirra.
Ferðamaður gisti í fangageymslu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Dagur stöðugleika
27.5.2023 | 07:04
"Þannig muni verðtryggingin hverfa þegar stöðugleiki verður kominn í hagkerfið," er haft eftir Sigurði Inga innviðaráðherra í greininni. Nú er ég enginn hagfræðingur en er dagur stöðugleika í íslensku hagkerfi ekki sami dagurinn og þegar frýs í helvíti?
Komi til greina að banna 40 ára verðtyggð lán | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Smá slúður
26.5.2023 | 23:06
Elsti sonur Donald Trumps, Don Jr., styður föður sinn að sjálfsögðu en sagði samt: "Trump hefur jafnmikla útgeislun og útfararumsjónarmaður." Hann meinti auðvitað DeSantis en þetta var samt vandræðalegt, svo ekki sé meira sagt. Freudisti gæti auðvitað gert meira úr þessu.
Kosningabarátta DeSantis fór illa af stað vegna tæknilegra örðugleika á Twitter og gerði Trump miskunnarlaust grín að því. Það er ekkert fast í hendi og alltaf von á klúðri. Svona er lífið, eins og útlaginn Ned Kelly á að hafa sagt við böðulinn sem hengdi hann. En svo er þetta víst bara goðsögn. En sagan er ekki verri fyrir það.
Miði er möguleiki | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Dóp og fræðimennska
26.5.2023 | 00:11
Eins og frægt er sagði Karl Marx: Hingað til hafa heimspekingar einungis túlkað heiminn á ýmsa vegu. Það sem máli skiptir er að breyta honum. Þessi hugmynd réttlætir aðgerðasinna-fræðimennsku, sem er að mati margra ekki alvöru fræðmennska heldur pólitík. Marx sagði líka að trúarbrögð séu ópíum fólksins. Franski heimspekingurinn Raymond Aaron sagði, Marxismi er ópíum menntamanna.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ballið byrjar
24.5.2023 | 23:22
Trump lítur svo á að hann hafi bjargað stjórnmálaferli Ron DeSantis og því sé framboð DeSantis rýtingsstunga í bakið á Trump. Nú þegar er byrjað að sýna auglýsingar úr herbúðum Trumps sem gera lítið úr DeSantis. Trump veðjar á að nægilega margir kjósendur trúi því að bara einn maður geti gert Bandaríkin frábær aftur, aftur--DONALD J. TRUMP.
Nú er spurning hvort DeSantis svari í sömu mynt og reyni að gera lítið úr Trump eða hafi ákveðið að kjósendur séu búnir að fá nóg af hasar og vilji frekar hófstilltari kosningabaráttu? En fá kjósendur einhverntímann nóg af hasar? Það verður spennandi að fylgjast með því hvort DeSantis saxar á forskot Trumps.
Landskjörstjórn tók á móti gögnum DeSantis | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)