Geisp . . .

ósköp er þetta heimskulegt, klisjukennt og ófyndið. Ég hélt nú að Hank Azaria væri aðeins gáfaðri, frumlegri og fyndnari en þetta. 


mbl.is Reyndi að koma hallarverði úr jafnvægi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spekúlasjón

Kannski bíður Michelle Obama sig fram til forseta. Hún hefur reyndar sagt að hún myndi ekki gera það en það gæti breyst, sérstaklega í ljósi þess að Ipsos skoðanakönnun sem gerð var í þessum mánuði sýnir að hún er eina manneskjan sem myndi sigra Trump.


mbl.is Lofar Biden en lýsir ekki yfir stuðningi við Harris
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þjórfé

Af hverju borgar konan ekki þjórfé ef þetta skiptir hana svona miklu máli? Að segjast ekki hafa efni á því er léleg afsökun.


mbl.is Eiginmaðurinn vill ekki gefa þjórfé
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Loforð

Trump reynir að telja fólki trú um að hann sé vegurinn, sannleikurinn og lífið. Menn muna kannski að hann ætlaði að byggja múr milli Mexíkó og Bandaríkjanna og láta Mexíkó borga fyrir hann. Það var náttúruleg bara lýgi, svo maður vitni í Elvis. Núna lofar Trump alheimsfriði, því hann er fæddur sölumaður og veit að margir, kannski flestir, eru barnslega auðtrúa.

Varðandi orð Selenskís, þá eru þau frekar fáránleg vegna þess að hann er ekki í neinni aðstöðu til að segja hverjum hann vilji vinna með. Hann verður að vinna með þeim sem vilja vinna með honum og ætti að sýna aðeins meira þakklæti fyrir þá aðstoð sem hann hefur fengið til þessa.  


mbl.is Trump ræddi við Selenskí
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Demókratar í krísu

Á síðustu dögum hafa líkurnar á því að Joe Biden stígi til hliðar aukist, en eins og Trump segir stundum, Hver veit hvað gerist? Er Kamala Harris betri kostur en Biden? Ég er ekki svo viss um það. Að mínu mati er sú staða sem upp er komin--að ólíkindatól eins og Trump sé líklegri til að vinna--mikill áfellisdómur yfir demókrötum. Líberalar á borð við þáttastjórnandann Bill Maher hafa hamrað á því að ofurwokismi demókrata fæli venjulegt fólk frá flokknum. Ef Trump vinnur kosningarnar í nóvember læra demókratar kannski eitthvað af því--eða ekki. Það er alltaf auðveldara að kenna öllu öðru um en sjálfum sér.


mbl.is Bjarni: „Hrikaleg mismæli“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spurning

Trúir No Borders fólkið á grensur þegar kemur að þeirra eigin skrifstofuhúsnæði? Væru þau sátt við að einhver mætti þangað og setti þjóðfána einhvers lands í gluggana hjá þeim?


mbl.is Taka ábyrgð á palestínsku fánunum í Hallgrímskirkju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þýskur húmor

Svo segir fólk að Þjóðverjar hafi ekki kímnigáfu. 


mbl.is Járnbrautarkerfið í Þýskalandi „alþjóðlegur brandari“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Orðræða

Ef Joe Biden hefði verið skotinn hefðu Repúblikanar sætt sig við svona orðræðu, sem er að sjálfsögðu fáránlega óábyrg? Nei, auðvitað ekki. En svona tal kemur auðvitað ekki á óvart. Og svo er líka byrjuð umræða á vinstri vængnum um að Trump hafi skipulagt árásina sjálfur. Enn og aftur, án sannana er allt svona tal óabyrgt svo ekki sé meira sagt. En samsæriskenningavélarnar eru komnar í gang og munu ekki stöðvast í bráð hvað sem hver segir.


mbl.is „Joe Biden gaf fyrirmælin“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Biden-Trump

Mér líst nokkuð vel á að Trump verði varaforsetaefni Bidens--Trump var nú einu sinni Demókrati og yrði betri en Kamala Harris--og að Repúblikanar velji sér annað forsetaefni. Biden-Trump myndu tapa, eins og þeir eiga svo sannarlega skilið, fyrir Repúblikana sem væri hvorki föðurlandssvikari né kalkaður. Það getur allt gerst! wink


mbl.is Þrír dagar til stefnu: Varaforsetaefni óljóst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bless

Ætli það sé ekki frekar frægðin sem sé búinn að fá sig fullsadda af Ellen DeGeneres.


mbl.is Búin að fá sig fullsadda á frægðinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband