Um umræður
18.9.2023 | 06:43
Í frjálslyndum lýðræðisríkjum geta kennarar tjáð skoðanir sínar opinberlega og nemendur hafa frelsi til að gagnrýna þær skoðanir harðlega. Orð, hvort sem þau eru röng eða sönn, geta verið stuðandi, eins og allir vita, en umræður um alvarleg málefni eru nauðsynlegar. Annars lærir enginn neitt, hvorki kennarar, nemendur, né aðrir.
![]() |
Líðum ekki fordómafullar yfirlýsingar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Spurning
15.9.2023 | 22:00
Eru frjálslyndir femínistar og sumt samkynhneigt fólk semsagt ekki gott fólk, að mati prófessorsins, vegna þess að það er ekki nægilega róttækt og vill ekki umbylta samfélagsgerðinni?
![]() |
Auðvelt að höfða til tilfinninga um börn í hættu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Að hugsa sinn gang
5.7.2023 | 23:13
Ef maður kemst í kast við lögin í landi sem er mögulega frjálslyndasta ríki heims þarf maður kannski aðeins að hugsa sinn gang.
![]() |
Greta Thunberg ákærð vegna loftslagsmótmæla |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Orwellísk orð
4.7.2023 | 01:32
Er til orwellískari frasi en "jákvæð mismunun"? Mismunun er mismunun. Orðskrípi eins og "jákvæð mismunun" sljóvga hugsunina enda er það tilgangurinn.
![]() |
Harvard sakaður um að hygla hvítum nemendum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Matarmenning
3.7.2023 | 21:17
Íslendingar hafa borðað ýmislegt í gegnum tíðina: hákarl, handrit, bjúgu.
![]() |
Bjúgun versta sem Friðrik Ómar hefur smakkað |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Kapítalisminn og vatnið
30.6.2023 | 22:46
Stundum er sagt að kapítalistar eigi sér ekkert föðurland og því skipti gróði þá meira máli en menning, tunga og allt annað. Svo má líka halda því fram að þetta mál sé stormur í vatnsglasi. En það er vissulega rétt hjá Eríki að dropinn holar steininn.
![]() |
Segir gagnrýni á Bon Aqua skiljanlega |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Tillaga
29.6.2023 | 20:26
Ég legg til að blaðamenn hætti nú þegar að nota þessa kjánalega slettu pop up.
![]() |
Landsliðskokkurinn með pop up á Sauðá |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Skaparinn og skrímslið
24.6.2023 | 09:15
Sú staða sem núna er kominn upp í Rússlandi er að öllum líkindum ekki staða sem Pútín reiknaði með í upphafi árásarinnar á Úkraínu. Prigósjín er skrímsli Pútíns og þeir sem hafa lesið Frankenstein, eða séð útgáfu af sögunni í bíó, vita að skrímsli getur snúist gegn skapara sínum.
Pútínskir samsæriskenningasmiðir er að sjálfsögðu byrjaðir að halda því fram að vesturlönd séu á bakvið atburðina en það eru nú bara fastir liðir eins og venjulega.
![]() |
Pútín: Þetta eru landráð! |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Rússnesk saga
23.6.2023 | 22:12
Maður furðar sig á því að Prigósjín sé enn á lífi. Með hverjum degi sem líður aukast líkurnar á því að hann hljóti sömu örlög og Raspútín.
![]() |
Bræðravíg í uppsiglingu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Tölur
22.6.2023 | 08:22
Fylgi Vinstri grænna er í sögulegu lágmarki, 5.7% samkvæmt Gallup. Einungis Flokkur fólksins mælist með minna fylgi, 5.5%. Skyldi fylgi Vinstri grænna fara upp eða niður eftir þessa ákvörðun? Flokkurinn virðist í útrýmingarhættu. Kannski þarf að friða hann.
![]() |
Þruma úr heiðskíru lofti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)