Færsluflokkur: Bloggar

Mergur málsins

Lukasz Pawlowski, sem stýr­ir stefnu­mót­un­ar­deild pólska ut­an­rík­is­ráðuneyt­is­ins, segir:

Það sem ógn­ar vald­höf­un­um [í Rússlandi] er heim­ur þar sem land eins og Úkraína – sem þeir kalla til­bún­ing – gæti stefnt að lýðræðis­leg­um hug­sjón­um og endað bet­ur statt en Rúss­land.

Það er það sem Kreml ótt­ast: að venju­leg­ir Rúss­ar gætu séð það og áttað sig á að betra líf án keis­ara er mögu­legt.

Þetta er mergur málsins og lúmskt hjá honum að kalla Pútín "keisara." Á keisaratímanum var Úkraína oft kölluð Litla-Rússland og það er skoðun Pútíns þegar kemur að Úkraínu. Það mætti kannski segja að hann líti á Úkraínu eins og flestir Íslendingar líta á Vestmannaeyjar.


mbl.is Stærsta landið vill meira land
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Líf og lífskjör

Hressileg og mannleg umfjöllun. Kannski "Mannleg, of mannleg," eins og Nietzsche gamli sagði. Í greininni stendur:

Óeirðir geisa í Los Ang­eles og það blas­ir ekki endi­lega við með hvorri fylk­ing­unni á að halda.

Ann­ars veg­ar höf­um við lög­regl­una, þjóðvarðliðið og Trump, og þau sjón­ar­mið að það sé öll­um sam­fé­lög­um mik­il­vægt að farið sé eft­ir lög­um og leik­regl­um, og að það sé eðli­legt og æski­legt að mæta því af fullri hörku þegar mót­mæli snú­ast upp í of­beldi og eigna­spjöll.

Ég er svolítið hissa á því að greinarhöfundur, sem er frjálshyggjumaður ef mér skjátlast ekki, geri ekki meira úr eignarréttinum. Eru eignaspjöll í góðu lagi? Er ekki eignarrétturinn ein af undirstöðum frelsis og velmegunar? Þar að auki, ef það er valkvætt í frjálslyndu lýðræðissamfélagi hvort fólk fari eftir lögunum er það samfélagið komið í miklar ógöngur.

 


mbl.is Fréttaskýring: Að fá að bæta lífskjör sín í friði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Friðflytjandinn mikli

Pútín er auðvitað mjög diplómatískur og mikill friðflytandi eins og sagan hefur sýnt.


mbl.is Pútín vill leysa átökin með „diplómatískum leiðum“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Um styrki

Í greininni er vitnað í Gunnar Smára, sem segir: "Á sam­eig­in­leg­um fundi fram­kvæmda- og mál­efna­stjórna Sósí­al­ista­flokks­ins 1. ág­úst 2021 var samþykkt til­boð til kjós­enda sem kallað var Burt með elít­u­stjórn­mál þar sem kom fram að styrk­ir til Sósí­al­ista­flokks­ins yrðu ekki notaðir til að byggja upp flokk­inn held­ur Sam­stöðina og hreyf­ing­ar hinn­ar fá­tæku."

Ég skil ekki hvernig flokknum leyfist að styrkir sem hann fær frá Reykjavíkurborg og ríkinu, það er að segja, skattborgurum, séu notaðir til "að efla hags­muna­bar­áttu fá­tækra hópa og byggja upp fjöl­miðlun." Gilda engar reglur um notkun styrkja til stjórnmálaflokka?


mbl.is Gunnar Smári svarar „ruglukollum“ fullum hálsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Endurkoma Lilla apa

Þetta er frábærar fréttir! Lilli api er hluti af íslenskri nútímamenningu og er orðinn klassískur en samt síungur. Hann er alltaf fimm ára. Við getum lært af honum.


mbl.is Tekur við Brúðubílnum af ömmu sinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einföld lausn

Í greininni stendur: "Þing­flokk­ur Flokks fólks­ins lagði fram þings­álykt­un­ar­til­lögu í kjöl­far sam­bæri­legra launa­hækk­ana árið 2023 þar sem lagt var til að launa­hækk­an­ir til æðstu ráðamanna yrði frestað." Liggur þá ekki beinast við að Flokkur fólksins leggi fram þingsályktunartillögina aftur?" 


mbl.is Þingmaður segir launahækkunina til skammar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Klofningur hjá Landamæraandstæðingum (No Borders)?

Í lok greinar í Vísi stendur:

Í kvöldfréttum Stöðvar 2 var því haldið fram að hópurinn hafi verið á vegum No Borders-samtakanna. Meðlimir segja það ósatt og það er hér með leiðrétt.

Eru No Borders samtökin kannski komin með landamæri sem skilgreina hverjir eru og eru ekki á þeirra vegum? Það er flókið að vera aðgerðasinni í dag wink


mbl.is Myndir: Andstæðir pólar mættust á Austurvelli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vopnin kvödd?

Sýnd veiði en ekki gefin. Nýjusti fréttir gefa til kynna að hryðjuverkasamtökin Hamas samþykki ekki þessa tillögu Bandaríkjamanna um vopnahlé. 


mbl.is Ísrael samþykkir tillögu um vopnahlé
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Pólitík og fræðimennska

Vonandi gengur Núma allt í haginn. En mig langar að benda á eitt. Ég vitna fyrst í greinina:

„Það er verið að reyna stjórna því hvað há­skól­ar rann­saka og það er verið að gera rann­sókn­ir póli­tísk­ar. Ég er því al­gjör­lega ósam­mála. Mér finnst að vís­inda­menn eigi að hafa frelsi til þess að skoða hvað þeim þykir mik­il­væg­ast og sér­stak­lega að við verk­fræðing­ar fáum að skoða það sem hjálp­ar fólki og sam­fé­lög­um mest en ekki því sem póli­tík­us­um finnst,“ seg­ir Númi.

Það er löngu búið að gera rannsóknir pólitískar. Hvort sem fólk er sammála aðgerðum Trumps eða ekki þá er hann einfaldlega að bregðast við því hvernig DEI hugmyndafræðin (Diversity, Equity, Inclusivity, þ.e.a.s. Fjölbreytileiki, jöfnuður og inngilding) hefur verið notuð til að hafa áhrif á hvað fræðimenn rannsaka og hvernig þeir gera það. Hér er tilvitnun sem setur hlutina í samhengi:

As soon as President Donald Trump took office on Jan. 20, 2025, he signed an executive order titled “Ending Radical and Wasteful Government DEI Programs and Preferencing.” This order called for the termination of all diversity, equity, inclusion and accessibility – DEIA – mandates, policies and programs in the federal government.

These included “equity-related” grants or contracts, such as programs supporting underrepresented people in STEM, and all DEI or DEIA performance requirements for grant recipients – for example, requiring that grant recipients have a plan to address underrepresentation in their area of study.

Philomena Nunes, Michigan State University. "DEI initiatives removed from federal agencies that fund science, but scientific research continues."


mbl.is „Það er verið að gera rannsóknir pólitískar“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að vera eða vera ekki í NATO

Árás Pútíns á Úkraínu sannar gildi NATO. Þetta veit Pútín auðvitað. Ríki sem eru ekki í NATO og nálægt Rússlandi eiga það á hættu að Pútín leiki sama leikinn og hann lék gegn Úkraínu. Þetta er ástæðan fyrir því að eftir innrásina í Úkraínu gengu hin mjög svo pragmatísku lönd Svíþjóð og Finnland loksins í NATO. Leigtogar þessara þjóða áttuðu sig á því að miðað við hegðun Pútíns er öruggara að vera innan en utan NATO.


mbl.is Skilyrði að NATO hætti að stækka til austurs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband