Pólitík og fræðimennska
29.5.2025 | 01:35
Vonandi gengur Núma allt í haginn. En mig langar að benda á eitt. Ég vitna fyrst í greinina:
Það er verið að reyna stjórna því hvað háskólar rannsaka og það er verið að gera rannsóknir pólitískar. Ég er því algjörlega ósammála. Mér finnst að vísindamenn eigi að hafa frelsi til þess að skoða hvað þeim þykir mikilvægast og sérstaklega að við verkfræðingar fáum að skoða það sem hjálpar fólki og samfélögum mest en ekki því sem pólitíkusum finnst, segir Númi.
Það er löngu búið að gera rannsóknir pólitískar. Hvort sem fólk er sammála aðgerðum Trumps eða ekki þá er hann einfaldlega að bregðast við því hvernig DEI hugmyndafræðin (Diversity, Equity, Inclusivity, þ.e.a.s. Fjölbreytileiki, jöfnuður og inngilding) hefur verið notuð til að hafa áhrif á hvað fræðimenn rannsaka og hvernig þeir gera það. Hér er tilvitnun sem setur hlutina í samhengi:
As soon as President Donald Trump took office on Jan. 20, 2025, he signed an executive order titled Ending Radical and Wasteful Government DEI Programs and Preferencing. This order called for the termination of all diversity, equity, inclusion and accessibility DEIA mandates, policies and programs in the federal government.
These included equity-related grants or contracts, such as programs supporting underrepresented people in STEM, and all DEI or DEIA performance requirements for grant recipients for example, requiring that grant recipients have a plan to address underrepresentation in their area of study.
Philomena Nunes, Michigan State University. "DEI initiatives removed from federal agencies that fund science, but scientific research continues."
![]() |
Það er verið að gera rannsóknir pólitískar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 02:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)