Táraflóðið mikla
24.3.2014 | 00:24
Þetta var semsagt Táraflóð hjá Crowe. En hann var nú ekki alveg miður sín á Íslandi. Hann hitti til dæmis Patti Smith og söng með henni kórusinn í Because the Night" á Menningarnótt og virkaði nokkuð hress með það.
Mér sýnist að líka að myndin um Nóa hafi fengið náð í augum gagnrýnenda.
En hvað er þetta með karlkyns Hollywoodstjörnur og Ísland? Tom Cruise kom til Íslands og Katie Holmes notaði sjensinn og dömpaði honum. Þetta var svolítið kaldranalegt, því í myndinni sem hann gerði á landinu, Oblivion, finnur Tom Cruise konuna sína. En í raunveruleikanum tapaði hann henni. Lífið er tragíkómedía. Maður verður að hafa skopskyn," sagði Tom.
Crowe: Ég gat ekki hætt að gráta | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.