Að binda enda á togstreytu
27.2.2015 | 21:57
Eftirfarandi má finna á vef Félags múslima á Íslandi:
Heildstæð lífsviðhorf Maðurinn lifir og breytir í samræmi við lífsviðhorf sín. Sorgarsaga margra nútímaþjóðfélaga er tilkomin af vanmætti þeirra til að tengja saman mismunandi svið lífsins. Hið veraldlega og trúarlega, það vísindalega og andlega virðast eiga í togstreitu. Íslam bindur enda á þá togstreitu og kemur á samræmi í lífsskoðunum manna.
Bangladess er múslímskt samfélag. Þeir sem myrtu bloggarann breyttu í samræmi við lífsviðhorf sín. Þeir bundu enda á togstreytuna milli veraldlegra viðhorfa bloggarans og trúarlegra viðhorfa sinna. Morð er vissulega ein leið til að koma á samræmi í lífsskoðun manna, eins og veraldarsagan sýnir. Dauðinn er lausnin á öllum vandamálum," sagði Stalín. Enginn maður, ekkert vandamál."
Bloggari brytjaður í spað | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.