Glæpur og játning
26.2.2023 | 19:25
Í fréttinni stendur: Skýrslutökur yfir Murdaugh tóku nærri tíu klukkustundir og játaði hann að hafa myrt eiginkonu sína, Maggie, og son sinn, Paul, í júní árið 2021.
Ég er hræddur um að það þurfi að endurskrifa þetta og fyrirsögnina (Réttað yfir lögmanninum sem myrti fjölskyldu sína.) Í BBC fréttinni sem vitnað er í stendur að Alex Murdaugh neiti því að hafa framið morðin:
The 54-year-old has denied the murders, which prosecutors allege were a desperate diversion from decades of financial wrongdoing. But on the stand, he admitted to a number of other crimes, including embezzlement, fraud and a faked assassination attempt.
Allt bendir til þess að hann sé sekur en hann hefur ekki játað að hafa framið morðin.
UPPFÆRT: Fréttin hefur nú verið endurskrifuð. Takk fyrir það.
Réttað yfir lögmanninum sem er sakaður um morð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.