Bloggfærslur mánaðarins, mars 2019
Síðustu dagar feðraveldisins
23.3.2019 | 22:14
Núna geta allir verið fórnarlömb. Líka fótgönguliðar feðraveldisins. Vei!
![]() |
Hræðileg kynlífsreynsla karla |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ástir ósamlyndra hjóna
21.3.2019 | 07:11
Trump kallaði einn helsta stuðningsmann sinn, Roger Stone, "stone cold loser," þannig að það er svo sem ekkert skrítið að hann fari ekki fögrum orðum um George Conway. Allt snýst um hollustu í veröld Trumps og það er nokkuð ljóst að Kellyanne Conway hefur kosið að standa með Trump fremur en eiginmanninum. Hún hefur áreiðanlega sýnar ástæður fyrir því, en Trump er eins og tætari. Það er varasamt að koma of nálægt honum.
![]() |
Trump deilir við eiginmann Kellyanne |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Donald og Kim
7.3.2019 | 03:36
Þetta var ekki ferð til fjár hjá Trump. Hér er mynd sem segir meira en mörg orð.
![]() |
Trump virkilega vonsvikinn með Kim |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Kanadísk krísa
3.3.2019 | 22:45
Judy Wilson-Raybould var leyst frá störfum sem dómsmálaráðherra. Flestir telja að ástæðan hafi verið sú að hún neitaði að láta undan þrýstingi Trudeaus. Það sem gerir þetta mál sérlega erfitt fyrir Trudeau er að hann boðar bæði femínisma og réttlæti fyrir frumbyggja. Judy Wilson-Raybould er kona og frumbyggi. Hann skipaði hana í embætti en leysti hana svo frá störfum. Hún fékk annað starf í stjórninni, en hún sagði upp, því, að hennar mati og að mati meirihluta Kanadabúa, kom Trudeau ekki fram við hana á réttlátan hátt. Ímynd Trudeaus er að hann sé góði kallinn. Núna lítur hann út eins og vondi kallinn. Núna reynir virkilega á stjórnkænsku og heilindi hans.
![]() |
Mesta krísa Justin Trudeau til þessa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)