Bloggfærslur mánaðarins, maí 2024
Bíblían
4.5.2024 | 08:18
Það er ástæða fyrir því að fólk er enn að lesa, tala og skrifa um Bíblíuna. Það er hægt að vera algerlega trúlaus en átta sig samt á því að frá bókmenntalegu og menningarlegu sjónarhorni er Bíblían ein af merkustu bókum veraldarsögunnar.
![]() |
Biblían er í mínum huga ein versta bók sem til er |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Hugmynd
3.5.2024 | 04:18
Það væri kannski sniðugra fyrir forsetaframbjóðandann geðþekka að standa við hliðina á venjulegum væskli frekar en íslenskum Tarzan, því það er vonlaust að keppa við hinn síðarnefnda þótt maður sé í ágætis formi. Bara hugmynd!
![]() |
Frambjóðandi hnyklaði vöðvana með áhrifavaldi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Háværi minnihlutinn og við hin
2.5.2024 | 05:13
Ég held að ráðgjafarnir ofmeti áhrif Gísla Marteins, Felix Bergssonar og háværa minnihlutans.
![]() |
Fyrirtækjum ráðlagt að halda sig frá Eurovision |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 07:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Söngur Sólveigar Önnu
1.5.2024 | 21:04
Söngur Sólveigar Önnu er alltaf sá sami. Það eru allir geðveikir og/eða rosalega vondir nema hún sjálf og þeir sem hún hefur velþóknun á. Hvað segir hún um hryðjuverkasamtökin Hamas og árásina sem þau gerðu 7. október? Hér eru hennar orð:
"Hryðjuverk" gala íslensk stjórnvöld eins hátt og þau geta, til að tryggja sér ákafari og betri strokur frá Ameríku og hinu gjörspillta Evrópusambandi, þegar að fólk sem verið er að murka úr lífið reynir að rísa upp og kasta af sér oki kúgunar, rasisma og aðskilnaðarstefnu".
Heimild: DV.is 9. október 2023.
Ég frábið mér móralíseríngar frá fólki sem hugsar svona og er stollt af því.
![]() |
Stjórnvöld láti af sjúklegri undirgefni sinni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Er ást ákvörðun?
1.5.2024 | 06:44
Í svari sínu segir ráðgjafinn:
Þegar öllu er á botnin hvolft þá er það að elska eingöngu spurning um ákvörðun.
Það er ekki auðvelt að skilgreina hvað ást er en ég leyfi mér að fullyrða það að ansi margir eru ósammála því að ást sé ákvörðun. Maður elskar því maður getur ekki annað og það er líka ástæðan fyrir því að maður hættir að elska.
![]() |
Byrjaði með 20 árum eldri manni og er á bömmer því hann er orðinn svo gamall |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)