Kenning um mótmæli

Í Búsáhaldabyltingunni ánetjaðist ákveðinn hópur íslensku þjóðarinnar mótmælum á Austurvelli. Íslendingar eru, eins og allir vita, mjög hrifnæmir og áhrifagjarnir. Mótmæli eru móralskt dóp og ávanabindandi. Eftirfarandi línur eru úr klassísku lagi hedónistaheimspekinganna, Rolling Stones, "You Can't Always Get What You Want."

And I went down to the demonstration

To get my fair share of abuse

Singing, "We're gonna vent our frustration

If we don't we're gonna blow a fifty-amp fuse"

Sing it to me, honey!

Það er margt skrítið í kýrhausnum. 

 

 

 

 


mbl.is Mótmælandi réðst að Diljá Mist
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Anarkista rökfræði

No Borders Iceland samtökin eru ekki bara á móti landamærum. Þau eru líka á móti þjóðum, því þjóðir, líkt og ríki, eru rasískar, að mati samtakanna. Slagorð samtakanna, eins og sjá má á Fésbókarsíðu þeirra, er: “No borders, no nations.” “Engin landamæri, engar þjóðir.” Hvað þýðir það? Það þýðir að samtökin viðurkenna ekki einu sinni tilverurétt þjóðarinnar, Palestínumanna, sem þau segjast vera að berjast fyrir.


mbl.is Boða aftur til mótmæla við lögreglustöðina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lög og réttur

Fólk hefur rétt til að mótmæla á friðsamlegan hátt en þegar það kemur í veg fyrir að lögreglan og aðrar stofnanir ríkisins sinni skyldum sínum þarf að taka á því. Ef það er ekki gert ríkir óöld í landinu. Vinstri- og hægrisinnaðir aðgerðasinnar gleyma því stundum að það kaus þau enginn. Þeir eru ekki lögreglan. Þeir eru ekki ríkið. Þeir hafa engan rétt til að stjórna. Í frjálslyndum lýðræðisríkjum er fólki ekki heimilt að taka lögin í sínar eigin hendur og það eru góðar ástæður fyrir því eins og flestir vita. En sumir geta ekki, eða vilja ekki, skilja þetta.

 


mbl.is Mótmælendur hindruðu innkeyrslur lögreglu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áhyggjur

Ég hef nú smá áhyggjur af því hve margir, þar á meðal forseti Bandaríkjanna, tala við brúðu. Ég verð að segja það. En kannski eru þetta óþarfa áhyggjur.


mbl.is Elmo spurði og heimurinn svaraði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hroki og hleypidómar

Greta Salóme segir: “[É]g held að það sé mik­il­vægt að við sem al­menn­ing­ur–sem eig­um rík­is­útvarpið–setj­um press­una á og send­um skýr skila­boð.“

“Ríkið, það er ég,” sagði Sólkonungurinn.

“Almenningur, það er ég,” segir aðgerðasinninn.


mbl.is Vill að ríkisútvarpið ákveði sig: „Sorglegt“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Málfrelsi fyrir byrjendur

Bjarni Benediktsson hefur málfrelsi, alveg eins og Andrés Ingi Jónsson. 


mbl.is Segir Bjarna hafa rofið sögulegt þagnarbindindi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stóru kanónurnar

Ég sé nú ekki betur en að stóru kanónurnar vanti á þennan lista. Enda er eðlilegt að tónlistarmenn séu klofnir í þessu máli eins og aðrir. Það hugsa ekki allir eins, sem betur fer.

 


mbl.is Myndskeið: Pálmi og Palli vilja Ísland úr Eurovision
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýr tónn

Hér kveður við nýjan tón hjá Trump. Til þessa man ég ekki til þess að hann hafi nokkru sinni viðkennt mistök. Trump kemur stanslaust á óvart smile


mbl.is Friðhelgi þrátt fyrir að „fara yfir strikið“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mótmæli og menning

Þetta er gróft menningarnám. Rétthugsandi Íslendingar verða að mótmæla á Austurvelli ekki seinna en strax. wink


mbl.is Nývíkingastríðstrans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bann við flugeldum?

Árið 2020 var sett á fót undirskriftasöfnun sem gekk út á það að banna almenna notkun flugelda, "í staðinn gætu sveitarfélögin haldið sérstakar flugeldasýningar." Til þessa hafa fimm skrifað undir. Meirhluti Íslendinga er greinileg ekki til í svona bann--ennþá. Kannski bara spurning um tíma. Samkvæmt skoðanakönnun frá 2018 vilja 7% þjóðarinnar banna flugelda, en fram kemur að 18,5% af kjósendum Pírata vilja svona bann. Stundum heyrir maður tal um að flugeldar hafi slæm áhrif á hunda. Málið er að hundar hafa slæm áhrif á fólk í borgum, sem gæti skýrt hvers vegna margir hundaeigendur eru eins og þeir eru. Hundar eiga heima í sveit. 

Japanskir flugeldar


mbl.is Gamlárskvöldið heillar sem fyrr
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband